Hvað er í gangi í íslenskri máltækni? Framburðarþjálfun og Grammatek

Hvenær
15. september 2025 15:00 til 16:30
Hvar
Veröld - Hús Vigdísar
Stofa 008
Nánar
Aðgangur ókeypis
Í haust fara fram vikulegir fyrirlestrar á vegum Máltækniseturs. Fyrirlesarar frá HÍ, Árnastofnun og HR kynna yfirstandandi rannsóknarverkefni og nýsköpunarfyrirtæki segja frá starfsemi sinni. Fjallað verður um efni á borð við risamállíkön og gervigreind, talgreiningu og -gervingu og málvinnslu.
Mánudaginn 15. september eru tveir fyrirlestrar á dagskrá:
- Kl. 15–15:40. Computer assisted pronunciation training: CAPTinI and Nýrómur. Caitlin Richter.
- Kl. 15:50–16:30. Fyrirtækjakynning: Grammatek. Daniel Schnell.
Bæði erindin verða flutt á ensku. Fyrirlestraröðin fer fram í stofu 008 í Veröld.
Hvað er í gangi í íslenskri máltækni? Framburðarþjálfun og Grammatek.
