Hvað er í gangi í íslenskri máltækni? Careflux og TrustLLM

Hvenær
8. september 2025 15:00 til 16:30
Hvar
Veröld - Hús Vigdísar
Stofa 008
Nánar
Aðgangur ókeypis
Í haust fara fram vikulegir fyrirlestrar á vegum Máltækniseturs. Fyrirlesarar frá HÍ, Árnastofnun og HR kynna yfirstandandi rannsóknarverkefni og nýsköpunarfyrirtæki segja frá starfsemi sinni. Fjallað verður um efni á borð við risamállíkön og gervigreind, talgreiningu og -gervingu og málvinnslu. 8. september eru tveir fyrirlestrar á dagskrá:
Dagskrá:
- Kl. 15:00-15:40. Fyrirtækjakynning: Careflux. Stefán Ólafsson.
- Kl. 15:50-16:30. TrustLLM. Hafsteinn Einarsson.
Fyrirlestraröðin fer fram í stofu 008 í Veröld.
Í haust fara fram vikulegir fyrirlestrar á vegum Máltækniseturs.
