Grænn dagur á nýnemadögum

Hvenær
2. september 2025 12:00 til 12:30
Hvar
Háskólatorg
Nánar
Aðgangur ókeypis
Á grænum degi á nýnemadögum fer afhending græna fánans fram á Háskólatorgi kl. 12:00 og að því loknu verður nýtt tré gróðursett á háskólasvæðinu.
Grænfáninn er samvinnuverkefni umhverfis- og samgöngunefndar SHÍ og starfsmanns sjálfbærni- og umhverfismála í HÍ. Að auki er vonin sú að sem flestir starfsmenn og nemendur leggi verkefninu lið hvort sem það er með hugmyndum eða beinu vinnuframlagi til umhverfismála.