Skip to main content

PRICE fyrirlestur: lífeyrissjóðir og lífskjör eldra fólks

PRICE fyrirlestur: lífeyrissjóðir og lífskjör eldra fólks - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
24. september 2025 12:00 til 13:30
Hvar 

Þjóðminjasafnið (fyrirlestrasalur)

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Í erindinu er fjallað um þróun lífskjara og lágtekjuhlutfalla eldri borgara frá aldamótum á grundvelli skráargagna Hagstofu Íslands. Lífskjör eldra fólks hafa batnað verulega frá aldamótum og lágtekjuhlutföllin benda til þess að það hafi náðst fádæma árangur í baráttunni gegn fátækt þessa hóps. Í erindinu verður rýnt í ýmsa áhrifaþætti sem kunna að skýra þessa þróun en niðurstaðan bendir til að hann skýrist fyrst og fremst af vaxandi réttindum eldra fólks í lífeyriskerfinu.

Kolbeinn Stefánsson flytur fyrirlesturinn. Kolbeinn varði DPhil ritgerð sína í félagsfræði frá Oxfordháskóla árið 2013 og starfar sem dósent við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands.

Kolbeinn Stefánsson flytur fyrirlesturinn. Kolbeinn varði DPhil ritgerð sína í félagsfræði frá Oxfordháskóla árið 2013 og starfar sem dósent við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands.

PRICE fyrirlestur: lífeyrissjóðir og lífskjör eldra fólks