Ráðstefna um þverfræðilegar evrópskar rannsóknir á sviði frumkvöðlafræða

Víða á háskólasvæðinu
Ráðstefna um þverfræðilegar evrópskar rannsóknir á sviði frumkvöðlafræða (The Interdisciplinary European Conference on Entrepreneurship Research – IECER) fer fram í Háskóla Íslands dagana 13. og 14. september.
Ráðstefan fer fram árlega og hana sækja fulltrúar úr háskólasamfélagi, atvinnulífi og stjórnsýslu víða að úr heiminum. Markmið ráðstefnunnar er að efla þverfræðilegar rannsóknir á sviði frumkvöðlafræða í Evrópu og þar koma sama rannsakendur úr ýmsum fræðigreinum til þess að ræða nýjustu rannsóknir sínar.
Opnunarmálstofa ráðstefnunnar fer fram laugardaginn 13. september kl. 9:30–10:30 í HT-102 Háskólans.
- Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, flytur ávarp.
- Dr. René Chester Goduscheit, prófessor og aðstoðarforstöðumaður við Aarhus BSS við Árósaháskóla, flytur opnunarerindi. Rannsóknir hans beinast m.a. að ábyrgri nýsköpun, tækniyfirfærslu á milli háskóla og atvinnulífs og nýsköpun viðskiptalíkana, með sérstaka áherslu á smá og meðalstór fyrirtæki (SMEs). Hann hefur birt fjölda greina í virtum tímaritum á borð við Research Policy, Journal of Product Innovation Management, Journal of Business Ethics, Industrial Marketing Management, Creativity and Innovation Management og fleiri.
Dagskrá ráðstefnunnar má finna hér
Að ráðstefnunni standa Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri.
Ráðstefna um þverfræðilegar evrópskar rannsóknir á sviði frumkvöðlafræða (The Interdisciplinary European Conference on Entrepreneurship Research – IECER) fer fram í Háskóla Íslands dagana 13. og 14. september.
