Málþing um gervigreindarlæsi og notendafræðslu á háskólabókasöfnum.

Hvenær
12. september 2025 8:30 til 12:30
Hvar
Edda
Fyrirlestrarsalur, Arngrímsgötu 5
Nánar
Aðgangur ókeypis
Er þetta heimild? Gervigreindarlæsi og notendafræðsla á háskólabókasöfnum.
12. september 2025 / 08:30–12:30
Edda – fyrirlestrarsalur, Arngrímsgötu 5, 107 Reykjavík og streymi í Teams (slóð verður send eftir skráningu)
Tungumál: Fyrri fyrirlesturinn er á ensku og sá seinni á íslensku. Umræður fara fram á ensku og íslensku.
Málþingið er öllum opið og gjaldfrjálst.
Á vegum: Vinnuhópur um upplýsingalæsi. Samstarfsverkefni íslenskra háskólabókasafna.
Dagskrá
08:30 - 8:40 Opnunarávarp
08:40 - 10:10 (á ensku)
- Jeannette Ekstrøm - Navigating the Future: AI Competencies for Information Specialists in the Academic World
Generative AI is reshaping the information landscape, and its relevance in academic libraries is rapidly growing. The question is no longer whether to embrace AI, but what to adopt – and how to do so responsibly. In this seminar, the speaker will share practical cases showing how AI can enhance literature
10:10 - 10.30 Kaffiveitingar, hlé
10:30 - 12:00 (á íslensku)
- Sigurbjörg Jóhannesdóttir - Gervigreind í háskólabókasöfnum: Frá viðhorfum nemenda að hagnýtum leiðbeiningum fyrir upplýsingafræðinga.
Í námskeiðinu Internetið og upplýsingaleitir á námsleið Upplýsingafræði í Háskóla Íslands, er lögð rík áhersla á að þjálfa nemendur í að nýta gervigreind á faglegan og ábyrgan hátt. Nemendur öðlast færni í að nálgast, meta og nota upplýsingar í síbreytilegu umhverfi, með áherslu á hagnýtingu gervigreindar í leitartækni og textavinnslu, samhliða því að þróa gagnrýna hugsun og takast á við siðferðileg álitaefni. Í erindinu verða kynntar niðurstöður úr spurningakönnun sem framkvæmd var meðal nemenda haustið 2024, þar sem skoðað var hvernig þeir upplifðu og mátu notkun gervigreindar í námi. Auk þess að draga fram sjónarmið nemenda verður sýnt hvernig gervigreind var nýtt í kennslunni sjálfri, með dæmum um gervigreindarverkfæri sem voru notuð.
12:00 - 12:30 Spurningar og umræður
Er þetta heimild? Gervigreindarlæsi og notendafræðsla á háskólabókasöfnum.