Skip to main content

FRESTAÐ - Stjörnur og norðurljós með Sævari Helga við Kaldársel

Með fróðleik í fararnesti: Stjörnur og norðurljós með Sævari Helga við Kaldársel - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
26. september 2025 20:00 til 22:00
Hvar 

Kaldársel í Hafnarfirði

Nánar 
Brottför kl. 20:00

Viðburðinum hefur verið frestað

Brottför: Kl. 20 við Kaldársel í Hafnarfirði. Nánari staðsetning auglýst síðar á Fésbók og heimasíðu FÍ og HÍ.

Sjálfur Stjörnu-Sævar, líka þekktur sem Sævar Helgi Bragason, stjörnumiðlari frá Háskóla Íslands, svarar spurningum um norðurljósin, stjörnurnar og vetrarbrautina í gönguferð sem helguð er himingeimnum.

Nauðsynlegt er að klæða sig mjög vel. Gott er að taka með sjónauka, nesti og heitt á brúsa. 2 klst. Ef ekki viðrar til stjörnuskoðunar þennan dag er ferðinni frestað þar til góðar aðstæður skapast. Það verður þá auglýst á Fésbók og heimasíðu FÍ og HÍ.

Hluti af verðlaunaverkefni Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands: Með fróðleik í fararnesti.

Öll velkomin, þátttaka ókeypis. Ekkert að panta, bara mæta! 

Brottför: Kl. 20 við Kaldársel í Hafnarfirði.

Með fróðleik í fararnesti: Stjörnur og norðurljós með Sævari Helga við Kaldársel