Skip to main content

Útgáfuhóf: Barnavernd á Íslandi - fyrr og nú

Útgáfuhóf: Barnavernd á Íslandi - fyrr og nú - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
22. ágúst 2025 15:00 til 17:00
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Auðarsalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Heildstæð barnaverndarlög voru sett í fyrsta sinn á Íslandi árið 1932. Síðan þá hafa orðið gagngerar breytingar á íslensku samfélagi, laga umgjörð, stofnanauppbyggingu, fagþekkingu og framkvæmd mála og skipulagi málaflokksins. Lengi hefur verið rætt um þörf fyrir yfirlitsrit um barnavernd og það er því mikið fagnaðarefni að hér líti dagsins ljós yfirgripsmikið fræðirit um stöðu og þróun barnaverndar á Íslandi. Bókin er hugsuð sem fræðsluefni fyrir nemendur, kennara, starfsfólk og stofnanir í barnavernd og almennt fyrir starfsfólk á sviði félags- og heilbrigðisþjónustu. Bókin skiptist í 15 kafla en hefst á inngangi Sigrúnar Júlíusdóttur þar sem hún dregur upp mynd af barnavernd og félagsráðgjöf frá hugmyndafræðilegu sjónarhorni og sögulegri framþróun. Fræðilegur hluti bókarinnar skiptist í þrennt. Í fyrsta hluta er fjallað um barnaverndarlög og stjórnsýslu. Fjallað er um þróun barnaverndarlaga og uppbyggingu barnaverndarkerfisins á Íslandi. Í öðrum hluta er sjónum beint að starfsaðferðum og málsmeðferð í barnavernd. Skoðaðar eru áskoranir og tækifæri sem fylgja nýjum áherslum á samþættingu þjónustu við börn og rýnt í einstaka þætti málsmeðferðar. Í þriðja hluta er umfjöllun um ýmis úrræði í barnavernd. Farið er yfir þróun stuðningsúrræða og varpað ljósi á ýmsar hliðar fjölbreyttra stuðnings- og meðferðarúrræða í barnavernd. Auk hins fræðilega þáttar hefur bókin að geyma áhugaverð og upplýsandi viðtöl við núverandi og fyrrverandi starfsfólk í barnavernd. Alls var rætt við fjórtán einstaklinga sem komið hafa að málaflokknum á mismunandi tímum og úr ólíkum áttum sem gefur ómetanlega innsýn í barnaverndarstarf á Íslandi.

Ritstjórar eru Sigrún Harðardóttir, Halldór S. Guðmundsson og Hrefna Friðriksdóttir.

Hófið hefst með ávarpi ritstjóra og einnig munu höfundar og gestir flytja stutt ávörp.

Ný bók um þróun barnaverndar á Íslandi með fræðilegum greinum og viðtölum

Útgáfuhóf: Barnavernd á Íslandi - fyrr og nú