Móttaka nýnema á Menntavísindasviði

Saga 2.hæð norðurálma
Menntavísindasvið HÍ býður öllum nýnemum í grunnnámi sviðsins til móttöku og fræðslu mánudaginn 18. ágúst.
Dagskráin verður tvískipt. Nýnemar grunnnáms í Deild faggreinakennslu og Deild kennslu- og menntunarfræða mæta kl. 8.20-10.
Nýnemar grunnnáms í Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda og Deild menntunar og margbreytileika mæta kl. 10.10.
Báðar móttökur nýnema grunnnáms fara fram í nýju húsnæði Menntavísindasviðs á 2. hæð í Sögu, Hagatorgi 1. (Inngangur gegnt Þjóðarbókhlöðu).
DAGSKRÁ - Deild faggreinakennslu og Deild kennslu og menntunarfræða
08.20 - 9.00
- Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti MVS
- Gunnar Ásgrímsson, forseti sviðsráðs MVS og fulltrúar nemendafélaga MVS, Tuma, Kennó og Vatnið
- Kynning á nemendaþjónustu MVS
09.00 – 09.30
Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor í tómstunda- og félagsmálafræði - Ávarp og fjörefli
09.30 – 10.00
Kynning á námi eftir deildum og námsbrautum
12.00 - Kennsla hefst skv. stundaskrá
DAGSKRÁ - Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda og Deild menntunar og margbreytileika
10.10 - 10.40
- Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti MVS
- Gunnar Ásgrímsson, forseti sviðsráðs MVS og fulltrúar nemendafélaga MVS, Tuma, Kennó og Vatnið
- Kynning á nemendaþjónustu MVS
10.40 – 11.10
Vanda Sigurgeirsdóttir, ávarp og fjörefli
11.10 – 11.40
Kynning á námi eftir deildum og námsbrautum
12.00 - Kennsla hefst skv. stundaskrá
Dagskrá og gagnlegar upplýsingar fyrir nýnema má finna á nýnemasíðu sviðsins.
Við hvetjum nýnema í grunnnámi eindregið til að mæta á móttökuna.
Móttaka nýnema í grunnnámi á Menntavísindasviði fer fram mánudaginn 18. ágúst frá kl.08:20 á 2.hæð í Sögu.
