Hvað er í gangi í íslenskri máltækni?

Hvenær
18. ágúst 2025 15:00 til 16:30
Hvar
Veröld - Hús Vigdísar
Stofa 008
Nánar
Aðgangur ókeypis
Í haust fara fram vikulegir fyrirlestrar á vegum Máltækniseturs. Fyrirlesarar frá HÍ, Árnastofnun og HR kynna yfirstandandi rannsóknarverkefni og nýsköpunarfyrirtæki segja frá starfsemi sinni. Fjallað verður um efni á borð við risamállíkön og gervigreind, talgreiningu og -gervingu og málvinnslu.
Þann 18. ágúst eru tveir fyrirlestrar á dagskrá:
Kl. 15:00–15:40
- Litið yfir farinn veg: Höfundar verkáætlunar fyrir máltækni í íslensku (2017)
- Anna Björk Nikulásdóttir, Jón Guðnason og Steinþór Steingrímsson
Kl. 15:50–16:30
- Heilbrigðismáltækni og klínísk málsýnagreining
- Iris Edda Nowenstein
Fyrirlestraröðin fer fram í stofu 008 í Veröld.
Í haust fara fram vikulegir fyrirlestrar á vegum Máltækniseturs.
