Nýnemadagar: Kynning á þjónustudeildum HÍ

Hvenær
1. september 2025 11:30 til 13:00
Hvar
Háskólatorg
Nánar
Aðgangur ókeypis
Þjónustudeildir Háskóla Íslands kynna starfsemi sína á Háskólatorgi kl. 11:30-13:00. Nemendaráðgjöf, stúdentaráð, alþjóðasvið, framkvæmdasvið, nemendaskrá og margir fleiri aðilar verða á staðnum og veita upplýsingar um sín svið og þjónustu.
Þarna verða einnig fulltrúar frá Háskóladansinum og Háskólakórnum og meðlimir kórsins munu stíga á svið og taka nokkur lög.
Allir nýnemar hvattir til að mæta og kynna sér alla þá fjölbreyttu þjónustu sem er í boði í HÍ.