Skip to main content

Hvað er í gangi í íslenskri máltækni?

Hvað er í gangi í íslenskri máltækni? - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
18. ágúst 2025 15:00 til 16:30
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Stofa 008

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Í haust fara fram vikulegir fyrirlestrar á vegum Máltækniseturs. Fyrirlesarar frá HÍ, Árnastofnun og HR kynna yfirstandandi rannsóknarverkefni og nýsköpunarfyrirtæki segja frá starfsemi sinni. Fjallað verður um efni á borð við risamállíkön og gervigreind, talgreiningu og -gervingu og málvinnslu.

Þann 18. ágúst eru tveir fyrirlestrar á dagskrá: 

Kl. 15:00–15:40

  • Litið yfir farinn veg: Höfundar verkáætlunar fyrir máltækni í íslensku (2017)
    • Anna Björk Nikulásdóttir, Jón Guðnason og Steinþór Steingrímsson 

Kl. 15:50–16:30

  • Heilbrigðismáltækni og klínísk málsýnagreining
    • Iris Edda Nowenstein

Fyrirlestraröðin fer fram í stofu 008 í Veröld.

Í haust fara fram vikulegir fyrirlestrar á vegum Máltækniseturs.

Hvað er í gangi í íslenskri máltækni?