Skip to main content

Doktorsfyrirlestur í spænsku: Nuria Frías Jiménez

Doktorsfyrirlestur í spænsku: Nuria Frias Jiménez - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
21. ágúst 2025 15:00 til 16:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Fimmtudaginn 21. ágúst 2025 fer fram doktorsfyrirlestur við Mála- og menningardeild við Háskóla Íslands. Þá heldur Nuria Frías Jiménez doktorsfyrirlestur sinn í spænsku. Viðburðurinn fer fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og hefst kl. 15:00. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku.

Nuria varði doktorsritgerðina sína þann 12. desember síðastliðinn við Háskólann í Sevilla á Spáni. Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn Erlu Erlendsdóttur, prófessors í spænsku við Háskóla Íslands, og Auxiliadoru Castillo Carballo, prófessors við Háskólann í Sevilla. Einnig voru í doktorsnefnd Sigrún Á. Eiríksdóttir þýðandi og Begoña Sanromán Vilas, dósent við Háskólann í Helsinki.

Gísli Magnússon, deildarforseti Mála- og menningardeildar, stjórnar athöfninni.

Um rannsóknina

Doktorsverkefni Nuriu Frías Jiménez fjallar um orðastæður í íslensku og spænsku og er hagnýt samanburðarrannsókn. Orðastæður eru orðasambönd sem getur reynst erfitt að læra og tileinka sér í tungumálanámi. Tilgangur rannsóknarinnar er m.a. sá að greina hvað orðastæður í spænsku og íslensku eiga sameiginlegt og hvað ekki, en slíkur samanburður hefur ekki verið gerður áður í þessum tungumálum. Niðurstöður rannsóknarinnar munu nýtast í nýja íslensk-spænska orðabók sem er í smíðum (LEXÍA-SP) á vegum Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum. Jafnframt munu þær nýtast í gerð kennsluefnis fyrir nemendur í spænsku á Íslandi.

Um doktorinn

Nuria Frías Jimenez er með BA-gráðu annars vegar í spænsku og hins vegar í ensku frá Universitat Autònoma de Barcelona og sameiginlega MA-gráðu í kennslu spænsku sem erlends máls frá Universidad de Deusto í Bilbao og Háskóla Íslands. Samhliða doktorsnáminu hefur Nuria starfað sem stundakennari í spænsku við Mála- og menningardeild.

Nuria Frías Jimenez.

Doktorsfyrirlestur í spænsku: Nuria Frias Jiménez