Skip to main content

Hvernig virkar hagfræðin?

Inga Lára Gylfadóttir, BS frá Hagfræðideild 

Skortur á fróðleik um íslenskt hagkerfi og virkni þess fyrir hinn almenna borgara varð kveikjan að lokaverkefni Ingu Láru Gylfadóttur í BS-námi í hagfræði. Lokaverkefnið hefur nú fengið nýtt líf í bókinni Auður – hagfræði fyrir íslenska þjóð, sem kom út á haustdögum 2013 á vegum Stofnunar um fjármálalæsi. „Ég skrifaði í raun bók um það sem ég vildi að mér hefði verið sagt eða kennt fyrr á lífsleiðinni,“ segir Inga.

Inga Lára Gylfadóttir

Í bókinni lýsir Inga Lára á aðgengilegan hátt helstu hugtökum í hagfræði og ferðast fram og aftur í tíma, frá sjálfsþurftarbúskap til hins flókna hagkerfis nútímans.

Inga Lára Gylfadóttir

Inga bendir á að flestir byrji að skuldbinda sig fjárhagslega um tvítugt án þess að hafa mikla þekkingu á slíkum skuldbindingum. Hún hafi snemma í hagfræðináminu farið að velta fyrir sér hvers vegna fólk fái ekki meiri kennslu um efnahagsmál en raun ber vitni. „Þannig varð til hvati og löngun til að gera sem flestum sem hafa áhuga kleift að nálgast efnið og læra um þessa hluti, hvort sem þeir ætla að leggja fyrir sig viðskipta- eða hagfræði eða einungis kynnast efnahagsumhverfinu og virkni þess og skilja það betur,“ útskýrir Inga.

Í bókinni lýsir Inga Lára á aðgengilegan hátt helstu hugtökum í hagfræði og ferðast fram og aftur í tíma, frá sjálfsþurftarbúskap til hins flókna hagkerfis nútímans. Hún segir ljóst af viðtökunum að marga þyrsti í fróðleik um fjármál, ekki síst eftir efnahagsáföllin sem dunið hafa yfir þjóðina. „Að mínu mati hefur verulega skort hlutlausa umfjöllun um hagkerfið og hvernig það virkar. Ég hef bæði hitt fólk á mínum aldri og eldra sem er að lesa bókina fyrir sig sjálft eða vill gefa yngri kynslóðum hana. Auk þess hafa nokkrir skólar tekið hana til kennslu,“ segir hún.

Inga hefur ekki sagt skilið við fjármálafræðsluna. „Næst á dagskrá er að útbúa verkefnahefti sem gæti hentað með bókinni í kennslu. Annars er mitt aðalverkefni að fljúga flugvélum Icelandair og svo er ég þessa dagana með annan fótinn á skrifstofu Icelandair í ýmsum flugtengdum verkefnum þar sem ég hef getað nýtt reynslu mína og menntun bæði úr fluginu og úr háskólanum,“ segir Inga að endingu.

Leiðbeinandi: Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, lektor við Hagfræðideild.