Skip to main content

Hindranir útflytjenda

Áslaug Þorbjörg Guðjónsdóttir, MS frá Viðskiptafræðideild 

„Rannsóknin mín snýst um hindranir í útflutningsstarfsemi íslenskra fyrirtækja, í innra og ytra umhverfi þeirra. Þessar hindranir geta verið hvers kyns stór og smá vandamál sem á einhvern hátt tefja, flækja eða hindra útflutning. Markmiðið var að skilja hindranirnar og svara þannig spurningunni hverjar þær væru helstar. Einnig lagði ég áherslu á að fjalla um þær á hagnýtan hátt,“ segir Áslaug Guðjónsdóttir, sem lauk MS-prófi í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum vorið 2013.

Áslaug Þorbjörg Guðjónsdóttir

„Rannsóknin mín snýst um hindranir í útflutningsstarfsemi íslenskra fyrirtækja, í innra og ytra umhverfi þeirra. Þessar hindranir geta verið hvers kyns stór og smá vandamál sem á einhvern hátt tefja, flækja eða hindra útflutning.“

Áslaug Þorbjörg Guðjónsdóttir

Kveikjan að vali á rannsóknarefninu var áhugi Áslaugar á útflutningsaðstoð. „Mér fannst áhugavert að komast að því hvað fyrirtæki ganga í gegnum í útflutningsstarfsemi sinni með það í huga hvernig hægt væri að stuðla að sem árangursríkustum útflutningi. Ég vildi vita hvaða þættir hafa neikvæð áhrif á útflutningsstarfsemi fyrirtækja svo að hægt væri að gera sér grein fyrir þörf á umbóta- og hagræðingarverkefnum innan fyrirtækjanna. Einnig væri hægt að taka mið af þessum þáttum við útflutningsaðstoð, hvort sem sú aðstoð fæli í sér ráðgjöf eða breytingu á rekstrarumhverfi fyrirtækjanna,“ útskýrir hún.

Áslaug segir að niðurstöður úr rannsókninni sýni að íslensk útflutningsfyrirtæki búi í raun við margþættar hindranir. Þær helstu eru fjármagnsskortur, mannekla, menningarmunur, ólíkir viðskiptahættir hér heima og í landinu sem varan er flutt til, hár flutningskostnaður, tíð ferðalög starfsfólks, flókin og tímafrek tollamál og pappírsvinna, óhagstætt rekstrarumhverfi, miklar gengissveiflur íslensku krónunnar og hörð samkeppni á erlendum mörkuðum.

„Rannsóknin var fyrirbærafræðileg, þ.e. gerð með eigindlegri aðferð sem byggist á reynslu viðmælenda og því hvað sú reynsla merkir, og það hefur bæði gildi fyrir fræðin og samfélagið. Úr rannsóknargögnunum er unnið í þremur þrepum og í hverju þeirra greinir rannsakandi kjarnann betur frá hisminu. Mjög takmarkaðar upplýsingar eru til um hindranir í útflutningi íslenskra fyrirtækja og þessi rannsókn er sú eina sem gerð hefur verið með þessari aðferð. Rannsóknin gefur innsýn í reynsluheim viðmælenda og dýpkar þannig skilning okkar á viðfangsefninu. Einnig gefur hún upplýsingar um birtingarmyndir hindrananna en þær upplýsingar eru afar mikilvægar svo að hægt sé að takast á við þessar hindranir,“ segir Áslaug. 

Leiðbeinendur: Gunnar Óskarsson, lektor við Viðskiptafræðideild, og Erla S. Kristjánsdóttir, aðjunkt við Viðskiptafræðideild.