Styrkveiting úr Styrktar- og rannsóknarsjóði Þuríðar J. Kristjánsdóttur

Saga
1. hæð
Styrkveiting úr Styrktar- og rannsóknarsjóði Þuríðar J. Kristjánsdóttur. Tilgangur sjóðsins er að veita styrki til doktorsnema á Menntavísindasviði, einkum vegna rannsókna á sviði kennslumála.
Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands afhendir styrkinn kl. 14.00 á 1.hæð í sögu.
Styrkveiting er samhliða opnunar Menntabúða sem fara fram 26. mars frá kl. 14.00 -17.00.
Um Sjóðinn
Styrktar- og rannsóknasjóður Þuríðar J. Kristjánsdóttur var stofnaður undir hatti Styrktarsjóða Háskóla Íslands árið 2019. Stofnframlag sjóðsins er gjöf Þuríðar Jóhönnu Kristjánsdóttur, fyrrverandi prófessors við og aðstoðarrektors Kennaraháskóla Íslands, sem lést árið 2018. Í erfðaskrá sinni arfleiddi hún Háskóla Íslands að húseign sinni og öðrum eigum með það að markmiði að stofna styrktarsjóð.
Þuríður Jóhanna Kristjánsdóttir fæddist á Steinum í Stafholtstungum í Borgarfirði 28. apríl 1927. Hún lauk kennaraprófi við Kennaraskóla Íslands árið 1948 og var síðar við nám í Kennaraháskólanum í Kaupmannahöfn og Cambridge-háskóla í Englandi. Hún lauk BS-prófi frá Illinois-háskóla í Urbana árið 1968, meistaraprófi 1969 og doktorsprófi í menntasálarfræði frá sama skóla árið 1971. Hún hóf störf við Kennaraháskóla Íslands árið 1971 og varð fyrsti prófessor við skólann 1973. Þá gegndi hún starfi aðstoðarrektors Kennaraháskólans á árunum 1983-1987. Þuríður lét af störfum við skólann árið 1989.
Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu sjóðsins á sjóðavef Háskóla Íslands, www.sjodir.hi.is og á heimasíðu sjóðsins.