Ráðstefnan NBM - Sjálfbær viðskiptalíkön

Háskóli Íslands
Alþjóðlega NBM ráðstefnan um sjálfbær viðskiptalíkön verður haldin af Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands 24.-26. júní 2025.
Tímamótaviðburður í sjálfbærni og viðskiptum.
NBM ráðstefnan er nú haldin 10. sinn og það er gaman að því að Ísland hafi orðið fyrir valinu sem ráðstefnustaður.
Sérstakir gestir og fyrirlesarar
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, mun taka þátt í spjalli undir yfirskriftinni „Framtíðarhæf og nýstárleg viðskiptamódel – viðskipti sem afl til góðs“, en hún hefur verið ötull talsmaður sjálfbærrar þróunar og jafnréttis í viðskiptum.
Aðalræðumaður ráðstefnunnar er prófessor Jan Jonker frá Nijmegen School of Management við Radboud háskóla í Hollandi. Hann er einn af upphafsmönnum NBM ráðstefnanna og er þekktur fyrir framlag sitt til fræðanna um sjálfbær viðskiptalíkön og hringrásarhagkerfið.
Fjölbreytt dagskrá og tækifæri
Ráðstefnan mun bjóða upp á:
- 140 erindi sem verða flutt í 12 mismunandi málstofum eftir efni þeirra
- Fjórar sérhæfðar vinnustofur um:
- Sjálfbæra tísku
- Loftslagstengdar lausnir
- Þverfræðilega og þverfaglega nálgun á sjálfbærnitengd viðfangsefni
- Þvermenningarlega nálgun á nýsköpun og sjálfbær viðskiptalíkön
Komið og fræðist um nýjustu strauma og stefnur varðandi viðskiptalíkön og sjálfbærni og bætið tengslanetið.
Skráning og frekari upplýsingar
Nánari upplýsingar á heimasíðu ráðstefnunnar: https://www.newbusinessmodels.org/welcome-reykjavik-2025
Alþjóðlega NBM ráðstefnan um sjálfbær viðskiptalíkön verður haldin af Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands 24.-26. júní 2025.
