Skip to main content

Heilsan okkar: Ópíóíðar og verkjalyfjameðferðir í íslensku samfélagi

Heilsan okkar: Ópíóíðar og verkjalyfjameðferðir í íslensku samfélagi - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
29. maí 2026 11:30 til 13:00
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Fyrirlestrasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Heilsan okkar: Ópíóíðar og verkjalyfjameðferðir í íslensku samfélagi

Lokafundur vormisseris í fundaröðinni Heilsan okkar fer fram í Veröld – húsi Vigdísar föstudaginn 29. maí kl. 11:30-13:00

Umsjón og ritstjórn: Jóhanna E. Torfadóttir, lektor við Miðstöð í lýðheilsuvísindum

Fundarstjóri: Martin Ingi Sigurðsson, prófessor við Læknadeild HÍ

Hlekkur á beint streymi: Væntanlegur

Dagskrá

  • Sigríður Zoëga, dósent við Hjúkrunar og ljósmóðurfræðadeild Háskóla Íslands og deildarstjóri við Landspítala – Verkir og meginþættir í meðferð verkja

  • Freyja Jónsdóttir, dósent við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands – Flokkar verkjalyfja, aukaverkanir og langvinn notkun

  • Helga Zoega, prófessor við Miðstöð í lýðheilsuvísindum Háskóla Íslands – Notkun á ópíóðum á Íslandi og samanburður við önnur lönd

  • Adam Bauer, réttarefnafræðingur á Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði við Háskóla Íslands og doktorsnemi í líf- og læknavísindum við Háskóla Íslands - Ópíóíðar og ketamín á höfuðborgarsvæðinu: Greining á lyfjaávísunum, fráveitugögnum og fölsuðum lyfjum

  • Anna Bryndís Blöndal, dósent við Lyfjafræðideild og forstöðumaður Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu – Ábyrg notkun verkjalyfja – niðurtröppun og endurskoðun lyfjameðferðarPallborðsumræður í lokin

  • Pallborðsumræður

Heilsan okkar er fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar er varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Þessir mánaðarlegu upplýsingafundir eru öllum opnir og verða á dagskrá síðasta föstudag hvers mánaðar.

Fundur maímánaðar í fundaröðinni Heilsan okkar er lokafundur vormisseris og fer fram í Veröld – húsi Vigdísar föstudaginn 29. maí kl. 11:30-13:00 

Heilsan okkar: Ópíóíðar og verkjalyfjameðferðir í íslensku samfélagi