Skip to main content

Föstudagskaffi Mýrarinnar: Gervigreindarrannsóknir CADIA

Föstudagskaffi Mýrarinnar: Gervigreindarrannsóknir CADIA - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
15. maí 2026 9:30 til 10:15
Hvar 

Gróska

Mýrin

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Á föstudagskaffi Mýrarinnar, frumkvöðlaseturs Vísindagarða HÍ á fyrstu hæð í Grósku, þann 15. maí kl. 9.30-10.15 verður skyggnst inn í spennandi heim CADIA, gervigreindarseturs Háskólans í Reykjavík.

​Þeir Stefán Ólafsson og Kristinn R. Þórisson munu segja frá því sem er að gerast í rannsóknum CADIA í dag og veita innsýn inn í framsækin framtíðarverkefni setursins. Hjá CADIA hafa verið stundaðar rannsóknir á sviði gervigreindar allt frá árinu 2005.

​Þetta er einstakt tækifæri til að heyra frá þessum sérfræðingum í bland við ilmandi kaffi og brakandi ferskt bakkelsi.

Á föstudagskaffi Mýrarinnar, frumkvöðlaseturs Vísindagarða HÍ á fyrstu hæð í Grósku þann 15. maí kl. 9.30-10.15 verður skyggnst inn í spennandi heim CADIA, gervigreindarseturs Háskólans í Reykjavík.

Föstudagskaffi Mýrarinnar: Gervigreindarrannsóknir CADIA