Árni Árnason, dósent við Læknadeild og Stefán H. Stefánsson, MS-nemi í hreyfivísindum
„Álagseinkenni frá hásin eru algeng bæði hjá íþróttafólki og almenningi. Slík einkenni eru oft langvinn og geta haft veruleg áhrif á árangur þeirra sem stunda íþróttir, auk þess sem þetta getur takmarkað getu fólks almennt til göngu og annarrar hreyfingar,“ segir Stefán H. Stefánsson sjúkraþjálfari um þann vanda sem reynt er að ráða bót á í meistararannsókn hans í hreyfivísindum.
„Meðhöndlun slíkra einkenna getur tekið nokkra mánuði og því er mikilvægt að finna meðferð sem getur stytt meðferðartímann og skilað betri árangri,“ bætir hann við.
Árni Árnason, dósent í sjúkraþjálfun, er leiðbeinandi Stefáns. Hann segir að markmið rannsóknarinnar sé að prófa þrýstinudd, sem er ný aðferð sem þróuð hefur verið til þess að meðhöndla álagseinkenni frá hásin, og bera það saman við þá meðferð sem algengust er í dag.
Árni Árnason
„Álagseinkenni frá hásin eru algeng bæði hjá íþróttafólki og almenningi. Slík einkenni eru oft langvinn og geta haft veruleg áhrif á árangur þeirra sem stunda íþróttir, auk þess sem þetta getur takmarkað getu fólks almennt til göngu og annarrar hreyfingar.“

Stefán segir að sjúkraþjálfarar fái oft fólk til sín í meðferð sem er með álagseinkenni frá hásin en rannsóknir hafi sýnt að árangursríkt sé að nota sérstaka æfingameðferð til að draga úr þessum einkennum. „Gallinn við æfingameðferðina er sá að til að ná viðunandi árangri þarf að gera þessar æfingar mjög oft, helst tvisvar sinnum á dag, og halda áfram í allt að 12 vikur. Þetta krefst því mikillar ástundunar og eftirfylgni sem ekki hentar öllum. Því er mikilvægt að finna aðra aðferð sem er að minnsta kosti eins áhrifarík og æfingameðferðin og nota má eina og sér eða með æfingameðferðinni til að bæta heildarárangur,“ segir Stefán.
Rannsóknin er nýlega farin af stað og því eru ekki enn komnar niðurstöður: „En væntingar okkar um árangur eru byggðar á klínískri reynslu af notkun þessarar nýju aðferðar, sem lofar góðu,“ segir Árni.
Hann bætir við að ef þessi nýja aðferð reynist árangursrík gæti það breytt meðferð við álagseinkennum frá hásin og ef til vill fleiri sinum. „Einnig gæti þessi nýja aðferð aukið skilning okkar á orsökum þessara meiðsla og jafnvel stuðlað að forvörnum og þar með dregið úr þessum meiðslum í framtíðinni.“