Heilsan okkar: Ópíóíðar og verkjalyfjameðferðir í íslensku samfélagi

Veröld - Hús Vigdísar
Fyrirlestrasalur
Heilsan okkar: Ópíóíðar og verkjalyfjameðferðir í íslensku samfélagi
Lokafundur vormisseris í fundaröðinni Heilsan okkar fer fram í Veröld – húsi Vigdísar föstudaginn 29. maí kl. 11:30-13:00
Umsjón og ritstjórn: Jóhanna E. Torfadóttir, lektor við Miðstöð í lýðheilsuvísindum
Fundarstjóri: Martin Ingi Sigurðsson, prófessor við Læknadeild HÍ
Hlekkur á beint streymi: Væntanlegur
Dagskrá
-
Sigríður Zoëga, dósent við Hjúkrunar og ljósmóðurfræðadeild Háskóla Íslands og deildarstjóri við Landspítala – Verkir og meginþættir í meðferð verkja
-
Freyja Jónsdóttir, dósent við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands – Flokkar verkjalyfja, aukaverkanir og langvinn notkun
-
Helga Zoega, prófessor við Miðstöð í lýðheilsuvísindum Háskóla Íslands – Notkun á ópíóðum á Íslandi og samanburður við önnur lönd
-
Adam Bauer, réttarefnafræðingur á Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði við Háskóla Íslands og doktorsnemi í líf- og læknavísindum við Háskóla Íslands - Ópíóíðar og ketamín á höfuðborgarsvæðinu: Greining á lyfjaávísunum, fráveitugögnum og fölsuðum lyfjum
-
Anna Bryndís Blöndal, dósent við Lyfjafræðideild og forstöðumaður Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu – Ábyrg notkun verkjalyfja – niðurtröppun og endurskoðun lyfjameðferðarPallborðsumræður í lokin
- Pallborðsumræður
Heilsan okkar er fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar er varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Þessir mánaðarlegu upplýsingafundir eru öllum opnir og verða á dagskrá síðasta föstudag hvers mánaðar.
Fundur maímánaðar í fundaröðinni Heilsan okkar er lokafundur vormisseris og fer fram í Veröld – húsi Vigdísar föstudaginn 29. maí kl. 11:30-13:00
