Eydís Salome Eiríksdóttir, doktorsnemi við Jarðvísindadeild
Jökulár á Íslandi streyma í sjó fram og um leið bera þær með sér kynstrin öll af efnum, þar á meðal svokallaðan svifaur. Eydís Salome Eiríksdóttir, doktorsnemi í jarðfræði, beindi nýverið sjónum sínum að svifaur og ýmsum öðrum efnum í jökulám á Austurlandi í rannsókn sem unnin var í tengslum við mat á umhverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjunar.
Eydís Salome Eiríksdóttir
Rannsóknir Eydísar og samstarfsfélaga hafa nú leitt í ljós að aukinn svifaur berst í sjóinn með jökulám samfara hækkandi lofthita og auknu afrennsli.

„Svifaur er fíngerð bergmylsna sem vatnsföllin bera með sér og getur styrkur hans í jökulám verið mikill. Framburður uppleystra efna í ám er mikilvægur þáttur í efnabúskap sjávar og hefur verið mikið rannsakaður,“ bendir Eydís á en bætir jafnframt við að framburðurinn hafi þó ekki getað skýrt að fullu styrk ýmissa efna og samsætuhlutföll í sjó, þ.e. hlutföll misþungra frumeinda sama frumefnis. „Sýnt hefur verið fram á að efni sem loða við yfirborð svifaurs geti skilað sér sem uppleyst efni til sjávar og haft áhrif á styrk leystra efna og samsætuhlutföll þar. Sum þessara efna eru mikilvæg næringarefni fyrir bakteríur og þörunga í sjó,“ segir hún enn fremur.
Rannsóknir Eydísar og samstarfsfélaga hafa nú leitt í ljós að aukinn svifaur berst í sjóinn með jökulám samfara hækkandi lofthita og auknu afrennsli. „Efnaskipti svifaurs og sjávar geta aukið framboð á mikilvægum næringarefnum fyrir frumframleiðandi lífverur í sjónum, eins og bakteríur og þörunga. Þessar ljóstillífandi lífverur taka til sín koltvíoxíð úr sjónum en styrkur koltvíoxíðs í sjó er í réttu hlutfalli við styrk þess í andrúmslofti,“ segir Eydís. Með öðrum orðum hefur aukin virkni lífveranna, sem fylgir aukinni fæðu, þau áhrif að það dregur úr styrk koltvíoxíðs í andrúmslofti og það leiðir aftur til minnkandi gróðurhúsaáhrifa „að því gefnu að sem mest af lífræna efninu sem myndast við ljóstillífun grafist á hafsbotni,“ útskýrir Eydís. Þannig má segja að aukinn framburður svifaurs í jökulám á löngum tíma vinni gegn gróðurhúsaáhrifum í andrúmslofti og um leið gegn loftslagsbreytingum.
Leiðbeinandi: Sigurður Reynir Gíslason, vísindamaður við Jarðvísindastofnun Háskólans.
Eydís lauk doktorsprófi frá Háskóla Íslands árið 2016.
