Bryndís Arndal Woods, doktorsnemi við Hagfræðideild
Loftslagsbreytingar eru ein stærsta áskorun nútímans og ekkert land fer varhluta af henni. Viðbrögð stjórnvalda við breytingunum skipta því sköpum en þar hyggst Bryndís Arndal Woods, doktorsnemi í hagfræði, leggja sitt af mörkum. „Ég þróa landnotkunarlíkan þar sem kannað er hvaða áhrif loftslagsbreytingar eru líklegar til að hafa á norrænan landbúnað með tilliti til vals bænda á nytjaplöntum. Þannig get ég sett fram mælikvarða á áhrif loftslagsbreytinga á val á nytjaplöntum og verðmæti lands í samhengi við þær,“ segir Bryndís.
Landbúnaður er mikilvægur fyrir efnahagslíf á Norðurlöndum og rannsókn Bryndísar mun auka þekkingu á þeim áskorunum og tækifærum sem fylgja hlýnandi loftslagi. „Ég vona að rannsóknir mínar auki skilning á mögulegum afleiðingum loftslagsbreytinga og styðji hagsmunaaðila í viðleitni sinni til að gera áætlanir fram í tímann og búa sig undir ýmsar breytingar,“ segir Bryndís.
Bryndís Arndal Woods
„Ég þróa landnotkunarlíkan þar sem kannað er hvaða áhrif loftslagsbreytingar eru líklegar til að hafa á norrænan landbúnað með tilliti til vals bænda á nytjaplöntum.“

Fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar sýna að umtalsverðar breytingar hafa, í aldanna rás, átt sér stað í vali á nytjaplöntum á Norðurlöndum. „Markmið greiningar minnar er að áætla að hve miklu marki þessar breytingar skýrast af loftslagsbreytingum með því að bera saman loftslagsbreytur á borð við hitastig og úrkomu og breytur sem tengjast ekki loftslaginu, eins og stofnkostnað og verð á nytjaplöntum,“ segir Bryndís.
Verkefnið fékk styrk úr Háskólasjóði H/f Eimskipafélags Íslands 2013 og er samvinnuverkefni Háskóla Íslands og fleiri rannsóknastofnana innan norræna rannsóknaverkefnisins NORD-STAR sem ætlað er að hjálpa mönnum að bregðast við loftslagsbreytingum á Norðurlöndum. „Markmiðið er að styrkja rannsóknir í því skyni að hjálpa norrænu ríkjunum að halda samkeppnisforskoti og takast á við áskoranir og tækifæri sem fylgja hlýnandi loftslagi,“ segir Bryndís að lokum.
Leiðbeinandi: Daði Már Kristófersson, forseti Félagsvísindasviðs og dósent við Hagfræðideild.