Þórólfur Guðnason, doktor í lýðheilsuvísindum
„Öndunar- og meltingarfærasýkingar eru langalgengustu sjúkdómar sem hrjá börn. Oftast eru þessar sýkingar ekki alvarlegar en geta verið lífshættulegar, valdið alvarlegum fylgikvillum og verið mjög kostnaðarsamar fyrir fjölskyldur barnanna og samfélagið í heild. Það er því brýnt að kortleggja þessa sjúkdóma hér á landi og finna einfaldar leiðir til að draga úr tíðni þeirra,“ segir Þórólfur Guðnason, barnalæknir og sérfræðingur í smitsjúkdómum barna. Þórólfur hlaut styrk úr Verðlaunasjóði Óskars Þórðarsonar læknis til að leggja lokahönd á doktorsrannsókn sína en hann lauk doktorsprófi í lýðheilsuvísindum frá Háskóla Íslands í nóvember 2013.
„Doktorsverkefnið mitt fjallaði um sýkingar og útbreiðslu pneumókokkabaktería í nefkoki hjá börnum á íslenskum leikskólum. Meginmarkmiðið var í fyrsta lagi að kanna tíðni öndunar- og meltingarfærasýkinga hjá börnum. Í öðru lagi var rannsökuð útbreiðsla pneumókokka hjá börnunum. Í þriðja lagi voru áhættuþættir fyrrgreindra sýkinga og áhættuþættir útbreiðslu pneumókokka kannaðir og í fjórða lagi var rannsakað hvort hreinlætisaðgerðir á leikskólunum gætu dregið úr ofangreindum sýkingum og útbreiðslu pneumókokka,“ segir Þórólfur.
Þórólfur Guðnason
„Öndunar- og meltingarfærasýkingar eru langalgengustu sjúkdómar sem hrjá börn. Oftast eru þessar sýkingar ekki alvarlegar en geta verið lífshættulegar, valdið alvarlegum fylgikvillum og verið mjög kostnaðarsamar fyrir fjölskyldur barnanna og samfélagið í heild.“

Rannsóknirnar voru unnar á leikskólum í Reykjavík, Hafnarfirði og Kópavogi á árunum 1992– 1999 og 2000–2003 í samvinnu við innlenda og erlenda aðila og voru styrktar af Evrópusambandinu, Rannís og Landspítala.
Að sögn Þórólfs voru sýkingar algengastar meðal ungra barna, sennilega vegna þess hve ónæmiskerfi þeirra er vanþroskað, og var tíðnin breytileg eftir árstíðum. Aðrir áhættuþættir voru breytilegir eftir tegundum sýkinga. Hreinlætisaðgerðir drógu ekki úr tíðni sýkinga eða útbreiðslu pneumókokka, sennilega vegna þess að hreinlæti á íslenskum leikskólum er gott fyrir.
„Niðurstöður verkefnisins sýna að öndunar- og meltingarfærasýkingar hjá börnum á íslenskum leikskólum eru algengar og er tíðni þeirra svipuð og í nálægum löndum. Þessar niðurstöður eru mjög ánægjulegar fyrir íslenskt samfélag. Þær sýna að það virðist óþarfi að ráðast í dýrar og erfiðar hreinlætisaðgerðir á leikskólum með það fyrir augum að fækka sýkingum þar sem undirliggjandi hreinlæti þar virðist gott,“ segir Þórólfur að lokum.
Leiðbeinandi: Haraldur Briem, dósent við Læknadeild.