Hrund Þórarinsdóttir, doktorsnemi við Uppeldis- og menntunarfræðideild
„Feður hafa í gengum tíðina fengið minni athygli en mæður sem uppalendur. Öryggi, ást og umhyggja; einnig heiðarleiki, umburðarlyndi og virðing ásamt trausti og gildi fjölskyldu er það sem feður hafa helst að leiðarljósi í uppeldi barna sinna.“ Þetta er meðal þess sem fram kemur í rannsókn Hrundar Þórarinsdóttur, doktorsnema í menntavísindum og stundakennara við Uppeldis- og menntunarfræðideild.
Hrund Þórarinsdóttir
„Feður hafa í gengum tíðina fengið minni athygli en mæður sem uppalendur. Öryggi, ást og umhyggja; einnig heiðarleiki, umburðarlyndi og virðing ásamt trausti og gildi fjölskyldu er það sem feður hafa helst að leiðarljósi í uppeldi barna sinna.“

Rannsókn Hrundar grundvallast á viðtölum við 23 feður og verður væntanlega mikilvægt framlag til rannsókna á uppeldissýn feðra bæði hér á landi og á alþjóðavettvangi ásamt því að hafa gildi fyrir fagfólk sem starfar með foreldrum. „Brýnt er að leita stöðugt að því hvernig best megi standa að uppeldi barna og styrkja foreldra í þessu ábyrgðarmikla hlutverki,“ segir Hrund og vonast jafnframt til að niðurstöðurnar geti vakið áhuga foreldra á uppeldissýn sinni og gert þá og aðra uppalendur, sem við öll erum með einum eða öðrum hætti, meðvitaðri en þeir eru þegar um mikilvægi þessa hlutverks.
Segja má að bæði persónulegur og faglegur áhugi á uppeldishlutverki foreldra sé kveikjan að rannsókn Hrundar. „Fyrir nokkrum árum var ég fengin til að kenna nýtt námskeið við Uppeldis- og menntunarfræðideild sem ber heitið Foreldrafræðsla og uppeldisráðgjöf. Við undirbúning þess námskeiðs og jafnframt þegar ég vann að MA-ritgerð minni um uppeldishlutverk foreldra varð mér ljóst hve lítið er til af íslenskum rannsóknum á þessu mikilvæga sviði, m.a. á sýn foreldra á uppeldishlutverk sitt, og hve brýnt er að auka rannsóknir á þessu sviði menntarannsókna,“ segir hún.
„Markmiðið með rannsókninni er að dýpka þekkingu og skilning á uppeldissýn feðra, gildum þeirra, markmiðum og leiðum og að skoða hvernig lífssögur þeirra tengjast uppeldissýn þeirra,“ segir Hrund að lokum.
Leiðbeinandi: Sigrún Aðalbjarnardóttir, prófessor við Uppeldis- og menntunarfræðideild.
Hrund lauk doktorsprófi frá Háskóla Íslands árið 2015.