Linda Sólveigar- Guðmundsdóttir, doktorsnemi við Félags- og mannvísindadeild
„Lítið er vitað um hinsegin innflytjendur á Íslandi í dag og reynslu þeirra af því að búa hér á landi en það er hugsanlega flóknara en gengur og gerist þar sem hinsegin innflytjendur geta orðið fyrir margþættri mismunun,” segir Linda SólveigarGuðmundsdóttir, doktorsnemi í mannfræði, sem nú vinnur að því að auka þekkingu á þessu sviði með rannsókn sinni, sem ber heitið Hinsegin innflytjendur á Íslandi: Afhjúpun, sjálfsmynd og að tilheyra.
Linda Sólveigar- Guðmundsdóttir
„Lítið er vitað um hinsegin innflytjendur á Íslandi í dag og reynslu þeirra af því að búa hér á landi en það er hugsanlega flóknara en gengur og gerist þar sem hinsegin innflytjendur geta orðið fyrir margþættri mismunun,”

Linda segir að helsta markmiðið með rannsókninni sé að kanna reynslu hinsegin innflytjenda af því að búa á Íslandi og um leið að ljá þeim rödd. „Í rannsókninni leitast ég meðal annars við að athuga hvort það að búa á Íslandi geri hinsegin innflytjendum á einhvern hátt auðveldara fyrir en áður en þeir komu hingað að takast á við kynhneigð sína. Svo skoða ég einnig hvernig atriði eins og til dæmis kyn, kyngervi, kynhneigð, etnískur uppruni, þjóðerni og stétt skarast og móta reynslu þessa hóps. Að auki mun ég kanna reynslu þátttakenda af því að tilheyra mismunandi hópum á Íslandi,” segir Linda sem notar m.a. hugmyndir um þverþjóðleika og tvíhliða sýn á umheiminn í rannsókninni.
Rannsóknin tengist meistaraverkefni Lindu sem hún vann í London árið 2009 og fjallaði um áhrif þess að opinbera kynhneigðina við mismunandi aðstæður. Ein af niðurstöðum þeirrar rannsóknar var að talsvert flóknara virtist vera að opinbera kynhneigðina ef viðkomandi er af öðrum etnískum uppruna en ráðandi er þar sem hann býr.
„Ég hef lengi haft áhuga á málefnum hinsegin fólks og langaði að vinna meira með það sem fram kom í MA-rannsókninni,” segir Linda og bendir á að í rannsókninni sameini hún fræðilega umfjöllun um fólksflutninga og hinsegin fræði en það hefur ekki verið gert áður hér á landi.
Leiðbeinandi: Unnur Dís Skaptadóttir, prófessor við Félags- og mannvísindadeild.