Ragnar Steinn Clausen, MS frá Umhverfis- og byggingarverkfræðideild
„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á skipulagsmálum,“ segir Ragnar Steinn Clausen sem lauk meistaranámi í byggingarverkfræði vorið 2016. Lokaverkefni hans fjallaði um möguleika þess að gera vegtengingu um Skerjafjörð. Vegtengingin myndi hafa áhrif á byggðarmynstur í Reykjavík þar sem bæjarhlutar eins og Álftanes, Garðabær, Kópavogur og Hafnarfjörður og nágrenni yrðu nær miðbænum en áður. Vegtengingin myndi einnig óneitanlega hafa áhrif á dreifingu umferðar á höfuðborgarsvæðinu. „Fyrir mitt leyti er þetta borðleggjandi fyrir það sem vantar í skipulag borgarinnar. Stórar borgir erlendis eru yfirleitt með hringtengingar en við erum ekki með slíkt hér á landi,“ segir Ragnar.
Ragnar Steinn Clausen
„Stórar borgir erlendis eru yfirleitt með hringtengingar en við erum ekki með slíkt hér á landi.“

Markmið Ragnars með rannsókninni var að forkanna og skapa grundvöll fyrir þeirri umræðu að vegtengingin væri möguleiki en það er ýmislegt sem þarf að kanna annað en hagkvæmni í skipulagsmálum. Til að mynda vega umhverfisáhrif slíkrar framkvæmdar þungt í umræðunni og kanna þarf hvaða áhrif vegtengingin myndi hafa á lífríki Skerjafjarðar.
Ragnar fer vandlega yfir kosti og galla vegtengingarinnar í rannsókninni en þar setur hann upp fimm ólíkar tillögur að mögulegri vegtengingu yfir fjörðinn. „Það er ýmislegt sem þarf að ræða en það má alls ekki loka á þá hugmynd að þarna gæti risið íbúabyggð sem yrði steinsnar frá miðborginni,“ segir hann. Ragnar bætir við að hann telji ekkert því til fyrirstöðu að farið verði í þessar framkvæmdir í framtíðinni ef Reykjavíkurborg og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu eru tilbúin að setjast niður, ræða málin og finna lausn sem hentar. „Mitt hlutverk er nú að koma þessu í farveg, “ segir Ragnar sem hefur áhuga á að kynna rannsóknina fyrir Reykjavíkurborg.
Leiðbeinendur: Sigurður Erlingsson, prófessor við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild og Þorsteinn Þorsteinsson, aðjunkt við Verkfræðistofnun Háskóla Íslands.