Auður Elva Vignisdóttir, doktorsnemi við Læknadeild
„Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur náð ellefu manna áhöfn farskipsins Fernanda sem eldur kom upp í um átján sjómílum utan Vestmannaeyja. Voru mennirnir allir komnir upp á þilfar skipsins og biðu þar björgunar en eldur logaði í vélarrúmi og brú þess.“ Svona hljóðar frétt á heimasíðu Slysavarnafélagsins Landsbjargar og er hún mjög í takt við fjölmargar aðrar þar sem fjallað er um björgunarflug þyrlusveita Landhelgisgæslunnar. Vitað er að þyrlur Landhelgisgæslunnar eru lífsnauðsynlegar þessari þjóð. Nú er í gangi doktorsverkefni við Háskólann þar sem farið er ofan í saumana á öllum þyrluflugum Landhelgisgæslunnar til að meta hlut þeirra í björgun mannslífa.
„Við förum í gegnum öll útköll þyrlunnar og skoðum hvers konar sjúklinga hún hefur flutt. Þetta er allt frá hjartveikum eða slösuðum sjómönnum í verulega slasaða einstaklinga í umferðarslysum. Við viljum sjá hvaða áhrif þyrlan hefur meðal annars á lífslíkur þeirra.“
Þetta segir Auður Elva Vignisdóttir, doktorsnemi í læknavísindum, sem leiðir rannsóknina. Henni er málið býsna skylt því hún er læknir á bráðamóttöku Landspítalans og sömuleiðis á þyrlu Landhelgisgæslunnar. Þegar við náum tali af Auði Elvu er hún nánast nýlent úr björgunarferð þyrlunnar austur á Hérað þar sem rjúpnaskyttu var bjargað en hennar hafði verið leitað í tæpa tvo sólarhringa. Enn og aftur sannaði þyrlan þar mikilvægi sitt.
Auður Elva Vignisdóttir
„Við förum í gegnum öll útköll þyrlunnar og skoðum hvers konar sjúklinga hún hefur flutt. Þetta er allt frá hjartveikum eða slösuðum sjómönnum í verulega slasaða einstaklinga í umferðarslysum.“

„Ég hef mikinn áhuga á bráðalæknisfræði og bráðaþjónustu utan spítala og þar spilar þyrlan mikilvægt hlutverk,“ segir Auður Elva sem fannst vera þörf á frekari rannsóknum sem styðja gagnsemi þyrlunnar.
„Við erum með þessu að leita hugmynda til að bæta þjónustuna enn frekar, meðal annars með því að bera okkur hér saman við þyrlustarfsemina í Norður-Noregi.“
Auður Elva segir það afar mikilvægt að sýna betur hvaða þjónustu þyrlan veiti í heilbrigðiskerfinu. „Þessi þjónusta er ekki sjálfgefin en flestir eru sammála um nauðsyn hennar og vonandi getur þessi rannsókn rökstutt frekar gagnsemi þyrlunnar. Með samstarfi við Norður-Noreg verður starfsemin skoðuð í alþjóðlegra samhengi og leitað eftir hugmyndum að úrbótum hjá hvoru landi fyrir sig.“
Leiðbeinandi: Brynjólfur Árni Mogensen, prófessor við Læknadeild.
