Áslaug Björk Ingólfsdóttir, MA-nemi við Lagadeild
„Mig langar virkilega að gera það sem í mínu valdi stendur til þess að hjálpa og styðja þessa einstaklinga og ég veit að margir eru sama sinnis enda er það mjög mikilvægt,“ segir Áslaug Björk Ingólfsdóttir, meistaranemi í lögfræði og ein þeirra sem tóku þátt í tilraunaverkefni innan Háskóla Íslands á vormisseri 2016. Þá sameinaði hópur laganema og félagsráðgjafarnema krafta sína og aðstoðaði hælisleitendur og flóttamenn við að fóta sig betur í íslensku samfélagi.
„Aðstoðin fólst m.a. í félagslegum stuðningi, samskiptum við opinberar stofnanir, aðstoð við útfyllingu eyðublaða, atvinnuleit og stuðningi til virkrar þátttöku í samfélaginu. Hugmyndin var sú að nemendurnir gætu verið eins konar „mentorar“ fyrir ákveðinn hælisleitanda eða flóttamann yfir ákveðið tímabil,“ segir Áslaug.
Verkefnið hafði tvíþættan tilgang að sögn Áslaugar. „Fyrst og fremst er það hugsað til þess að veita hælisleitendum og flóttafólki aðstoð. Í öðru lagi er markmið verkefnisins að þjálfa nemendur í að sinna samfélagslegum verkefnum á sínu fagsviði og leggja þannig sitt af mörkum til stuðnings hælisleitendum og flóttafólki,“ segir hún. Áslaug bætir við að því fylgi áskorun fyrir stofnanir samfélagsins þegar hælisleitendum og flóttafólki fjölgi eins og gerst hefur undanfarin misseri. „Aukin aðstoð, ráðgjöf og stuðningur til virkrar þátttöku í samfélaginu getur skipt sköpum fyrir þessa einstaklinga og ef til vill létt álagi af stofnunum.“
„Ýmislegt er hægt að gera, t.a.m. gætu nemendur staðið fyrir kynningum á málefnum hælisleitenda og flóttafólks á meðal stúdenta og fengið fræðimenn og einstaklinga úr atvinnulífinu sem unnið hafa í málaflokknum til þess að koma fram á málþingi, halda viðburði með ungu fólki á flótta eða taka málsvarahlutverkið lengra en í þessu verkefni og beita sér fyrir úrbótum í málaflokknum.“

Samstarf þvert á deildir
Hugmyndin að verkefninu kviknaði hjá Brynhildi G. Flóvenz, dósent við Lagadeild, þegar umræðan um flóttafólk stóð sem hæst hér á landi haustið 2015. Brynhildur leitaði til Guðnýjar Bjarkar Eydal, prófessors við Félagsráðgjafardeild, þar sem hún taldi vænlegt að laganemar og félagsráðgjafarnemar ynnu saman að þessu verkefni. Jafnframt var leitað til Sólveigar Bjarkar Sveinbjörnsdóttur, verkefnisstjóri málefna hælisleitenda hjá Reykjavíkurborg, en ákveðnir starfsmenn Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar voru tengiliðir nemenda og hælisleitenda. Úr varð að sjö nemendur úr hvorri deild tóku þátt í verkefninu og unnu einn félagsráðgjafarnemi og einn laganemi saman í teymi með hverjum hælisleitanda í sex vikur.
Áslaug vann úttekt á verkefninu síðasta sumar með stuðningi frá Nýsköpunarsjóði námsmanna ásamt því að þróa frekari stuðning og ráðgjöf nemenda. Hún segir niðurstöður úttektarinnar m.a. sýna að mikilvægt sé að nemendur fái góða handleiðslu og leiðsögn. „Þá er ljóst að æskilegt væri að verkefnið stæði yfir lengra tímabil en sex vikur þar sem þá gefst tækifæri til þess að fylgja viðkomandi betur eftir. Flestir nemendur gerðu það í raun en voru þá ekki með neina handleiðslu,“ segir Áslaug enn fremur.
Að sögn Áslaugar var tilraunaverkefnið nemendunum afar lærdómsríkt. „Þetta opnaði augu mín enn frekar fyrir þessum mikilvæga málaflokki og ég mun á vorönn 2017 skrifa meistararitgerð við Lagadeild á sviði flóttamannaréttar.“
Ætlunin er að halda verkefninu áfram á vormisseri 2017 en með breyttu sniði. „Hugmyndin er þá að nemendur vinni með þeim sem fengið hafa alþjóðlega vernd hér á landi, þ.e.a.s. flóttamönnum,“ segir Áslaug og bendir á að staða þeirra sé lakari en hælisleitenda sem fái ýmsa grundvallarþjónustu og húsnæði.
Hún hvetur nemendur til þess að hafa frumkvæði í þessum málaflokki. „Ýmislegt er hægt að gera, t.a.m. gætu nemendur staðið fyrir kynningum á málefnum hælisleitenda og flóttafólks á meðal stúdenta og fengið fræðimenn og einstaklinga úr atvinnulífinu sem unnið hafa í málaflokknum til þess að koma fram á málþingi, halda viðburði með ungu fólki á flótta eða taka málsvarahlutverkið lengra en í þessu verkefni og beita sér fyrir úrbótum í málaflokknum,“ segir Áslaug sem á augljóslega eftir að láta meira að sér kveða á þessu sviði.