Skip to main content

Tengsl næringar, þunglyndis og offitu

Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild

„Markmið verkefnisins er að auka skilning á því hvort og þá með hvaða hætti næringarástand og fæðuvenjur tengjast offitu og þunglyndi,“ segir Ingibjörg Gunnarsdóttir, sem stýrir fyrir Íslands hönd fjölþjóðlegu verkefni um næringu og heilsu. Verkefnið hlaut nýverið styrk úr sjöundu rammaáætlun Evrópusambandsins en að því standa fjórtán hópar frá níu löndum. Fjölþjóðlegt heiti verkefnisins er MoodFOOD (Multi-country collaborative project on the role of diet, food-related behaviour, and obesity in the prevention of depression), sem stendur fyrir þann tilgang verkefnisins að kanna samspil næringar og tiltekinna andlegra sjúkdóma.

Að Ingibjargar sögn verður MoodFOOD-verkefnið unnið í nánu samstarfi við Vilmund Guðnason, prófessor við Læknadeild og forstöðulækni Hjartaverndar. „Stuðst verður við ómetanleg gögn Hjartaverndar, auk gagna sem orðið hafa til í samstarfi Hjartaverndar og Rannsóknastofu í næringarfræði,“ segir Ingibjörg en hún er prófessor í næringarfræði og forstöðumaður Rannsóknastofu í næringarfræði við Háskóla Íslands og Landspítala.

Ingibjörg Gunnarsdóttir

„Markmið verkefnisins er að auka skilning á því hvort og þá með hvaða hætti næringarástand og fæðuvenjur tengjast offitu og þunglyndi.“

Ingibjörg Gunnarsdóttir

Að sögn Ingibjargar verða m.a. notuð gögn úr Reykjavíkurrannsókn Hjartaverndar (sem einnig er nefnd hóprannsókn Hjartaverndar), auk upplýsinga um fæðingarstærð og vöxt þátttakenda sem aflað var af starfsfólki Rannsóknastofu í næringarfræði. „Eins verður stuðst við spurningar um fæðuval úr Öldrunarrannsókn Hjartaverndar (AGES) en gildi þess spurningalista var metið á Rannsóknastofu í næringarfræði.“

Hóprannsókn Hjartaverndar hefur staðið yfir frá árinu 1967 og er umfangsmesta faraldsfræðilega hóprannsóknin sem framkvæmd hefur verið á Íslandi. Öldrunarrannsókn Hjartaverndar, sem er nýjasti áfanginn í hóprannsókn Hjartaverndar, er samstarfsverkefni Hjartaverndar og bandaríska heilbrigðisráðuneytisins (National Institutes of Health).

MoodFOOD-verkefnið hófst formlega núna um áramótin og því mun ljúka að fimm árum liðnum. Aðrir samstarfsaðilar í verkefninu hér á landi eru Inga Þórsdóttir, prófessor og forseti Heilbrigðisvísindasviðs, og Laufey Steingrímsdóttir, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild háskólans, auk annarra sérfræðinga á Rannsóknastofu í næringarfræði og hjá Hjartavernd. Íslenski hópurinn í MoodFOODverkefninu á að baki 15 ára samstarf sem mun, án nokkurs vafa, reynast dýrmætt við þá vinnu sem fram undan er.