Arnar Orri Eyjólfsson, BS-nemi við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild
„Það hefur tilfinnanlega vantað smáforrit á íslensku fyrir börn og við því erum við að reyna að bregðast,“ segir Arnar Orri Eyjólfsson, BS-nemi í hugbúnaðarverkfræði, sem vinnur að smáforriti fyrir börn á aldrinum fjögurra til sjö ára. Forritinu er ætlað að auka skilning þeirra á stafrófinu og tölustöfum og þegar lengra er komið að mynda orð og setningar og leysa einföld reikningsdæmi.
Arnar Orri Eyjólfsson
Arnar vinnur að forriti sem ætlað er að auka skilning barna á stafrófinu og tölustöfum og þegar lengra er komið að mynda orð og setningar og leysa einföld reikningsdæmi.

Arnar vinnur að þróun forritsins með þeim Hilmari Geir Eiðssyni og Bergsteini Karlssyni, nemendum í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík. „Hugmyndin kviknaði þegar Hilmar átti í vandræðum með að finna smáforrit á íslensku fyrir tveggja ára dóttur sína en fann nóg af þeim á ensku,“ segir Arnar. Hann bætir við að með verkefninu geti þeir vonandi lagt sitt af mörkum við að viðhalda íslenskri tungu í hinum stafræna heimi.
Þremenningarnir hlutu styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna sumarið 2013 til að vinna að þróun smáforritsins og hefur vinnan gengið ágætlega að sögn Arnars. „Við erum komnir með frumgerð af forritinu en eigum eftir að vinna svolítið í grafískri hlið þess áður en við erum tilbúnir að dreifa því. Hvenær það verður þori ég ekki alveg að fullyrða, vonandi vorið 2014,“ segir Arnar að endingu.
Leiðbeinandi: Páll Melsted, lektor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild.