Skip to main content

Skynugir róbótar

Kristinn Andersen, prófessor við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild

„Notkun róbóta hefur til þessa miðast einkum við tiltölulega einfaldar og síendurteknar aðgerðir, s.s. í framleiðsluiðnaði. Um þessar mundir er verið að þróa aðferðir til þess að gera róbótum kleift að takast á við verkefni sem hingað til hafa talist vandasöm og aðeins á færi mannshandarinnar. Jafnframt fer fram þróun af öðrum toga sem miðar að því að róbótar vinni ekki einangraðir á afgirtum svæðum, heldur vinni náið með starfsfólki og ljái því hjálparhönd, í bókstaflegum skilningi.“

Kristinn Andersen

„Notkun róbóta hefur til þessa miðast einkum við tiltölulega einfaldar og síendurteknar aðgerðir, s.s. í framleiðsluiðnaði. Um þessar mundir er verið að þróa aðferðir til þess að gera róbótum kleift að takast á við verkefni sem hingað til hafa talist vandasöm og aðeins á færi mannshandarinnar.“

Kristinn Andersen

Þetta segir Kristinn Andersen, prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði, en Kristinn kom til starfa við Háskóla Íslands í apríl í fyrra eftir meira en tveggja áratuga starfsferil hjá hátækni- fyrirtækinu Marel. Þar starfaði hann að þróun tölvusjónar til notkunar í iðnaði, röntgentækni og róbótatækni og jafnframt að öðrum viðfangsefnum sem snúa að nýtingu hátækni við matvælaframleiðslu og sjálfvirkni. Kristinn segist vona að reynsla sín úr fyrri störfum komi að góðu gagni við kennslu og rannsóknir við háskólann. Enginn vafi leikur á að með komu Kristins eflast enn frekar tengsl Háskóla Íslands við atvinnulífið en Kristinn mun m.a. stýra rannsóknum á sviði háþróaðra róbóta.

„Það sem á ensku er kallað cognitive robots má kannski á íslensku kalla skynuga róbóta, þar sem þessi róbótatækni byggir bæði á þróaðri skynjunartækni og gervigreind. Þetta svið er í örri þróun víða um heim og er ekki eingöngu heillandi fræðilegt viðfangsefni heldur er notagildi þess víðtækt, þar sem skynuga róbóta má nota víða – allt frá framleiðsluiðnaði til stuðnings við sjúka og aldraða. Á þessu sviði eru fjölmörg tækifæri og þar er ég að byggja upp kennslu og rannsóknaverkefni fyrir komandi misseri,“ segir Kristinn.