Arndís Sue Ching Löve, doktorsnemi við Læknadeild
Fæst okkar velta því fyrir sér hvað frá- rennslisvatn höfuðborgarsvæðisins hefur að geyma en þar geta leynst upplýsingar sem varpað geta ljósi á skuggahliðar samfélagins. Arndís Sue Ching Löve, lyfjafræðingur og doktorsnemi í líf- og læknavísindum, vinnur að nýstárlegri rannsókn þar sem faraldsfræði frárennslisvatns kemur við sögu en það er aðferð sem notuð er til þess að meta notkun ólöglegra ávana- og fíkniefna eða lyfseðilsskyldra lyfja. „Aðferðin byggist á því að litið er á frárennslisvatn frá ákveðnum stað sem safn þvagsýna úr heilu samfélagi. Styrkur efnanna er mældur í frárennslisvatninu með bestu greiningartækni sem völ er á og niðurstöðurnar verða notaðar til þess að meta neyslu efnanna á höfuðborgarsvæðinu,“ útskýrir Arndís.
Arndís Sue Ching Löve
Arndís vinnur að nýstárlegri rannsókn þar sem faraldsfræði frárennslisvatns kemur við sögu en það er aðferð sem notuð er til þess að meta notkun ólöglegra ávana- og fíkniefna eða lyfseðilsskyldra lyfja.

Arndís fékk áhuga á viðfangsefninu við störf hjá Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði við Háskóla Íslands en þar hafði hún m.a. það hlutverk að mæla ólögleg ávana- og fíkniefni í lífsýnum með ýmiss konar greiningartækni. Tæknin sem notuð er í rannsókn hennar er þekkt erlendis og segir Arndís að mælingar í frárennslisvatni í öðrum löndum hafi oft leitt í ljós mun meiri notkun ólöglegra ávana- og fíkniefna en komið hafi í ljós við aðrar hefðbundnari rannsóknaraðferðir. „Hjá mér vaknaði forvitni um hvort efnin væru greinanleg í frárennslisvatni við íslenskar aðstæður,“ bætir hún við.
Verkefnið er unnið í samstarfi við lyfjagreiningarfyrirtækið Arctic Mass og Orkuveitu Reykjavíkur sem safnar sýnum. Unnið er að því að setja upp greiningaraðferð vegna verkefnisins. „Ég og leiðbeinandi minn erum einnig þátttakendur í COST-verkefninu „Sewage biomarker analysis for community health assessment“ þar sem unnið verður að því að bæta ýmsa þætti aðferðafræðinnar, auka upplýsingaflæði og framkvæma samanburðarmælingar. Miðað við magn frárennslisvatns frá höfuðborgarsvæðinu og fólksfjölda er búist við því að efnin séu mælanleg í vatninu og því mögulegt að meta notkun þeirra hér á landi með faraldsfræði frárennslisvatns,” segir Arndís.
Verkefnið mun því varpa frekara ljósi á vágest í samfélaginu. „Mat á notkun ólöglegra ávana- og fíkniefna út frá mælingum í frárennslisvatni mun bæta og/eða staðfesta núverandi aðferðir sem notaðar eru til þess að meta neyslu á Íslandi. Einnig verður mögulegt að kanna stefnur í notkun efnanna milli vikudaga og árstíða á fljótvirkari hátt en áður og samanburður milli landa verður auðveldur,“ segir Arndís að lokum.
Leiðbeinandi: Kristín Ólafsdóttir, dósent við Læknadeild.