Aðalbjörg S. Helgadóttir, MS-nemi við Hjúkrunarfræðideild
Á hverjum degi, ævina á enda, eigum við flest í einhvers konar samskiptum. Þau geta verið áreynslulítil, þægileg, gefandi, nærandi, eflandi, fyrirsjáanleg, þakkarverð og ástrík eða niðurbrjótandi, meiðandi, erfið, slítandi, krefjandi og óútreiknanleg. En hvernig sem þau kunna að vera hafa þau áhrif á líf okkar, líðan, framkomu og jafnvel farsæld. Samskipti koma okkur öllum við.
Aðalbjörg S. Helgadóttir
Aðalbjörg er höfundur Samskiptaboðorðanna sem gefin voru út á vordögum 2012. „Tilgangur þeirra er að auka þekkingu á því hvað eru góð samskipti og áhrifum þeirra á líðan einstaklinga.“

Aðalbjörg S. Helgadóttir, meistaranemi í hjúkrunarfræði, er höfundur Samskiptaboðorðanna sem gefin voru út á vordögum 2012. „Tilgangur þeirra er að auka þekkingu á því hvað eru góð samskipti og áhrifum þeirra á líðan einstaklinga. Boðorðin fengu gríðarlega góðar viðtökur og í framhaldi af því langaði mig að leita svara við því með vísindalegum aðferðum hvort hægt væri að sýna fram á að það auki raunverulega vellíðan og lífsgæði að tileinka sér Samskiptaboðorðin,“ segir hún um rannsókn sína.
Því hefur verið fleygt að til að breyta heiminum verði maður að byrja á sjálfum sér og það er einmitt þess vegna sem Aðalbjörg valdi þetta viðfangsefni. „Vanlíðan og vanda í samfélagi okkar má oft rekja til niðurlægjandi samskipta,“ segir hún.
Það eru ekki komnar endanlegar niðurstöður úr rannsókninni en það sem þegar liggur fyrir gefur væntingar um að það leiði til betri samskipta og vellíðanar einstaklinga að tileinka sér boðorðin. „Um er að ræða nýsköpunarverkefni þar sem Samskiptaboðorðin hafa ekki verið rannsökuð áður og skapa þ.a.l. nýja þekkingu. Ég vona að niðurstöðurnar sýni fram á að góð samskipti leiði til aukinna lífsgæða og árangurs fyrir samfélagsþegna, að Samskiptaboðorðin skapi gott samfélag,“ segir Aðalbjörg jákvæð.
Leiðbeinandi: Sigrún Gunnarsdóttir, dósent við Hjúkrunarfræðideild.