Skip to main content

Rétta þarf hlut kvenna í rokki

Lára Rúnarsdóttir, MA-nemi við Stjórnmálafræðideild

Tónlist tónlistarinnar vegna eða hvað? Lára Rúnarsdóttir, meistaranemi í kynjafræði, rannsakaði stöðu tónlistarkvenna í popp- og rokktónlist á Íslandi sumarið 2013. Þar kortlagði hún kynjaskiptingu í félögum, nefndum og ráðum tónlistarmanna meðal þeirra sem stýra útgáfumálum og hlustendaráðum. Jafnframt kannaði hún kynjaskiptingu þeirra sem eiga lög á topplistum útvarpsstöðvanna, plötur á útgáfulistum og tónlistarfólk sem var tilnefnt til íslensku tónlistarverðlaunanna. „Það er lítið til af rannsóknum á Íslandi um stöðu kvenna í tónlist og því felst nýsköpunargildi verkefnisins í að afla nýrrar þekkingar á sviði jafnréttismála,“ segir Lára.

Lára Rúnarsdóttir

Lára rannsakaði stöðu tónlistarkvenna í popp- og rokktónlist á Íslandi sumarið 2013. Þar kortlagði hún kynjaskiptingu í félögum, nefndum og ráðum tónlistarmanna meðal þeirra sem stýra útgáfumálum og hlustendaráðum.

Lára Rúnarsdóttir

Lára starfar sjálf sem tónlistarkona og hefur gefið út fjórar breiðskífur á síðustu tíu árum. Hún segir hugmyndina að rannsókninni hafa kviknað þegar í ljós kom að engar tónlistarkonur voru tilnefndar til íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2012 í þeim flokkum þar sem mögulegt var að tilnefna bæði kyn. Lára segir þá staðreynd að kynjakerfið sé lífseigt og rótgróið eiga svo sannarlega við innan íslenska tónlistariðnaðarins. „Karlar eru í miklum meirihluta þeirra sem starfa innan tónlistariðnaðarins á Íslandi, hvort heldur við að skapa og flytja tónlist, spila hana á útvarpsstöðvum, stjórna útgáfumálum og kynningum, skrifum í blöðin eða við tæknivinnu ýmiss konar,“ bendir hún á.

Lára orðræðugreindi einnig gagnrýni á popp- og rokktónlist í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu á tímabilinu september til desember á árunum 2010–2012. Í ljós kom að notuð eru ólík orð um kynin, mjúk lýsingarorð um flutning og verk kvenna og tónlistin sögð „krúttleg, kósí og skemmtileg“ en orð eins „kraftur, húmor og snilld“ eru höfð um verk karla.

Niðurstöður rannsóknarinnar hafa verið kynntar og skýrsla með fræðilegum bakgrunni rannsóknarinnar liggur fyrir. „Nú er unnið að því að kynna rannsóknina innan tónlistargeirans þannig að hægt sé að bregðast við, bæta og breyta til að rétta hlut kvenna í rokki,“ segir Lára að lokum.

Leiðbeinandi: Gyða Margrét Pétursdóttir, lektor við Stjórnmálafræðideild.