Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor við Jarðvísindadeild
„Með verkefninu er ætlunin að þjálfa nýja kynslóð evrópskra eldfjallafræðinga,“ segir Magnús Tumi Guðmundsson, forseti Jarðvísindadeildar, um svokallað NEMOH-verkefni sem nú er í gangi. Í því munu átján doktorsnemar, og aðrir ungir vísindamenn, öðlast yfirsýn yfir helstu jarðeðlisfræðilegar aðferðir og líkön sem notuð eru í nútímaeldfjallafræði. Þeir fá að auki hver og einn sérþekkingu á tilteknu sviði. „Verkefnið felst ekki einungis í að þjálfa doktorsnemana í nýjustu aðferðum heldur einnig að byggja upp tengslanet sem verður þátttakendum í verkefninu dýrmætt þegar þeir hefja störf að námi loknu.“
Magnús Tumi Guðmundsson
„Verkefnið felst ekki einungis í að þjálfa doktorsnemana í nýjustu aðferðum heldur einnig að byggja upp tengslanet sem verður þátttakendum í verkefninu dýrmætt þegar þeir hefja störf að námi loknu.“

Magnús Tumi, sem er einn helsti sérfræðingur Íslendinga í eldfjallarannsóknum, segir að í samstarfsverkefninu NEMOH sé fræðilegum reiknilíkönum, tilraunum og mælingum af ýmsu tagi beitt. „NEMOH er styrkt af þeim hluta sjöundu rammaáætlunar Evrópusambandsins sem kenndur er við Marie Curie, en þar er áhersla lögð á þjálfun ungs vísindafólks.“
Magnús Tumi leiðir þátt Háskóla Íslands í verkefninu í samvinnu við Freystein Sigmundsson og fleiri jarðeðlisfræðinga en tveir doktorsnemanna stunda nám sitt við Jarðvísindastofnun, þau Hannah Reynolds frá Skotlandi og Werner Wittmann frá Þýskalandi. Ítalska eldfjallastofnunin veitir verkefninu forystu en innan þess eru tólf háskólar og stofnanir frá átta Evrópulöndum. „Nemarnir átján fá þjálfun, hver í sínum háskóla, og taka að auki þátt í nokkrum sérstökum NEMOH-námskeiðum sem skipulögð eru fyrir hópinn. Eitt þeirra verður hér á landi, í nágrenni Heklu, í ágúst á þessu ári.“
Þau Hannah og Werner sérhæfa sig í aflögun eldfjalla og varmaáhrifum eldgosa og innskota. Þau munu nýta mikilvæg gögn sem fengist hafa í umbrotunum undanfarin ár hér á landi. Þau hófu vinnuna í janúar í fyrra og fyrstu niðurstaðna úr vinnu þeirra er að vænta á þessu ári, að sögn Magnúsar Tuma.