Skip to main content

Netmeðferð við svefnleysi skilar góðum árangri

Erla Björnsdóttir, doktor frá Læknadeild

Svefnleysi er gríðarlega algengt vandamál og getur haft alvarlegar sálrænar, líkamlegar og efnahagslegar afleiðingar. Notkun svefnlyfja er mun meiri á Íslandi en annars staðar á Norðurlöndum þrátt fyrir að mælt sé með hugrænni atferlismeðferð (HAM) sem fyrsta úrræði við langvarandi svefnleysi. Hefðbundin HAM-meðferð er ekki aðgengileg öllum vegna skorts á sérfræðingum og vegna þess hve dreifbýlt landið er. Erla Björnsdóttir starfaði með fram doktorsnámi sínu, þar sem hún rannsakaði svefnleysi og andlega líðan fólks með kæfisvefn, við greiningu og meðhöndlun svefnvandamála. „Þar rak ég mig á þá gríðarlegu vöntun sem er á aðgengilegum og árangursríkum úrræðum við langvarandi svefnleysi. Og það var þá sem hugmyndin að netmeðferðinni kviknaði,“ segir hún.

Erla Björnsdóttir

Svefnleysi er gríðarlega algengt vandamál og getur haft alvarlegar sálrænar, líkamlegar og efnahagslegar afleiðingar. Notkun svefnlyfja er mun meiri á Íslandi en annars staðar á Norðurlöndum þrátt fyrir að mælt sé með hugrænni atferlismeðferð (HAM) sem fyrsta úrræði við langvarandi svefnleysi.

Erla Björnsdóttir

Til að sporna við lélegu aðgengi almennings að meðferð við svefnleysi stofnaði hún því árið 2013 fyrirtækið Betri svefn ásamt samstarfsfélögum. Netmeðferð þess lofar góðu og gefur almenningi á Íslandi kost á að nálgast árangursríka lausn við svefnleysi óháð búsetu. „Með netmeðferðinni má hugsanlega draga úr hinni miklu svefnlyfjanotkun Íslendinga, álagi á heilsugæslustöðvar og þeim kostnaði sem svefnvanda fylgir. Líklegt er að netið verði notað í auknum mæli á svipaðan hátt í annars konar meðferðum í framtíðinni og ljóst er að tækifærin eru fjölmörg,“ segir Erla.

Könnun á árangri netmeðferðarinnar leiddi í ljós að marktækar breytingar til hins betra urðu hjá notendum og voru þær enn til staðar sex vikum eftir lok meðferðar. „Notendur áttu auðveldara með að sofna, vöknuðu síður og neysla svefnlyfja minnkaði. Meðferðin virðist henta notendum vel og rúmlega 94% notenda myndu mæla með henni,“ segir Erla að lokum.