Skip to main content

Munnhirða á Mentor

Dana Rún Heimisdóttir, Hafdís Björk Jónsdóttir, Regína Sóley Valsdóttir og Sandra Gunnarsdóttir, kandídatsnemar við Tannlæknadeild

Okkur langaði að gera eitthvað nýtt og öðruvísi,“ segir Dana Rún Heimisdóttir um rannsókn sína og þriggja bekkjarsystra sinna í Tannlæknadeild, þeirra Hafdísar Bjarkar Jónsdóttur, Regínu Sóleyjar Valsdóttur og Söndru Gunnarsdóttur. Þær rannsaka áhrif einstaklingsmiðaðrar fræðslu á munnhirðu 12 ára barna. Bekkjarsysturnar eru sammála um að sá aldur sé mikilvægur þegar kemur að munnhirðu og matarvenjum. „Þetta er aldurinn þegar börn fara að bera ábyrgð á eigin munnhirðu og því er tilvalið að reyna að hafa jákvæð áhrif á þennan hóp,“ segir Hafdís Björk.

Dana Rún Heimisdóttir, Hafdís Björk Jónsdóttir, Regína Sóley Valsdóttir og Sandra Gunnarsdóttir

Stöllurnar nýta sér upplýsingavefinn Mentor til að senda hvetjandi skilaboð heim til barnanna. Þær vita ekki til þess að sú leið hafi áður verið farin í sams konar verkefni. „Ef vel gengur hjá okkur er hugsanlegt að fleiri komi til með að nýta sér vefinn við heilsueflingu af ýmsu tagi.“

Dana Rún Heimisdóttir, Hafdís Björk Jónsdóttir, Regína Sóley Valsdóttir og Sandra Gunnarsdóttir

Stöllurnar nýta sér upplýsingavefinn Mentor til að senda hvetjandi skilaboð heim til barnanna. Þær vita ekki til þess að sú leið hafi áður verið farin í sams konar verkefni. „Ef vel gengur hjá okkur er hugsanlegt að fleiri komi til með að nýta sér vefinn við heilsueflingu af ýmsu tagi. Með þessu náum við ekki einungis til barnanna heldur foreldranna líka og virkjum jafnvel fjölskylduna alla,“ segir Sandra.

„Við erum í raun að athuga hvort einstaklingsmiðuð fræðsla geti hugsanlega virkað betur en t.d. hópfræðsla, sem oftar hefur verið notuð. Ef til vill er betra að nálgast börnin á þennan hátt og þá einnig fjölskyldur þeirra. Við höfðum hugsað okkur að kannski væri hægt að hafa árlega fræðslu fyrir ákveðinn aldurshóp ef við fáum jákvæðar niðurstöður þannig að sem flestir fengju einstaklingsmiðaða fræðslu a.m.k. einu sinni á ákveðnu aldursbili,“ segir Regína Sóley um möguleg áhrif rannsóknarinnar.

Leiðbeinandi: Inga B. Árnadóttir, prófessor við Tannlæknadeild.