Skip to main content

Meistaraverkefnið verðlaunað

Inga Mekkin Beck, MA frá Íslensku- og menningardeild

„Þegar ég sendi handritið í samkeppnina var ég orðin dálítið þreytt á því, búin að velkjast með það í tvö ár. Ég gerði mér eiginlega engar vonir um að það yrði valið og þegar nær dró valinu var ég eiginlega nánast tilbúin að gefa rithöfundadrauma upp á bátinn. Að fá svo þær fréttir að mitt handrit hefði fengi þessi verðlaun ... það fylgdi því gífurleg geðshræring. Ég stóð ein á Klambratúni með símann í hendinni og hló og grét bæði í einu. Á þessu augnabliki varð ég opinberlega rithöfundur.“

Þannig lýsir Inga Mekkin Beck tilfinningunni þegar henni var tilkynnt að handrit hennar að barnabókinni Skóladraugnum hefði hlotið Íslensku barnabókaverðlaunin árið 2016. Handritið var hluti af lokaverkefni Ingu í ritlist við Háskóla Íslands en sjálf starfar hún nú við Háskólann samhliða ritstörfum.

Inga lauk námi í ritlist vorið 2015 og segist hafa verið skrifandi allt frá því að hún var í grunnskóla. „Í menntaskóla fór ég fyrst að skrifa mér til skemmtunar. Þá áttaði ég mig á því að tónlistarnámið sem ég hafði stundað frá sex ára aldri var ekki eitthvað sem ég vildi leggja fyrir mig til frambúðar og sköpunarkrafturinn og listagleðin fór að leita á önnur mið og ég gældi við þá hugmynd að verða rithöfundur einn daginn í hjáverkum,“ segir hún.

Inga lauk tvöfaldri BA-gráðu í ensku og japönsku máli og menningu frá Háskóla Íslands áður en hún hóf nám í ritlist. „Þegar ég áttaði mig á að ég gæti lært ritlist í háskólanum var ég langt komin með þessa tvöföldu BA-gráðu. Ég bætti því við mig ári og kláraði samhliða lokaverkefni í ensku þau fög sem krafist var af nemendum sem vildu innritast í meistaranám í ritlist og voru ekki brautskráðir í íslensku eða bókmenntafræði,“ segir Inga sem skrifaði nóvellu sem lokaverkefni í ensku.

„Ég á einhvers staðar enn þá hripað niður á lítinn miða, rifinn af horni úr stílabók, orðin „Húsvörðurinn, skóladraugurinn og ég“ sem var lausleg hugmynd sem snerist í kringum lítinn draug sem bjó í oggulítilli skúringakompu undir stiganum í gamla skólanum mínum. Ég dró svo fram þennan miða í ritlistarsmiðjunni Fjölskyldubókmenntir. Þar þróaði ég þessa hugmynd áfram, litla kompan varð að stórri geymslu og litli draugurinn varð að gömlum draug.“

Inga Mekkin Beck

Inga segir erfitt að segja hvenær hugmyndin að verðlaunabókinni Skóladraugnum kviknaði. „Ég á einhvers staðar enn þá hripað niður á lítinn miða, rifinn af horni úr stílabók, orðin „Húsvörðurinn, skóladraugurinn og ég“ sem var lausleg hugmynd sem snerist í kringum lítinn draug sem bjó í oggulítilli skúringakompu undir stiganum í gamla skólanum mínum. Ég dró svo fram þennan miða í ritlistarsmiðjunni Fjölskyldubókmenntir. Þar þróaði ég þessa hugmynd áfram, litla kompan varð að stórri geymslu og litli draugurinn varð að gömlum draug,“ segir Inga en bókin um skóladrauginn varð hluti af lokaverkefni hennar í ritlist.

Aðspurð segir Inga það stórkostlega byrjun fyrir rithöfund að fá Íslensku barnabókaverðlaunin og slíka umfjöllun og dreifingu á fyrstu bók. „Ég finn ekki lengur þörf fyrir að afsaka mig og mitt val á menntun. Þegar ég er spurð hvað ég geri þá er ég rithöfundur fyrst og verkefnisstjóri hjá Háskólanum númer tvö,“ segir Inga og bætir við: „Það er ekkert hik í mér lengur hvað varðar mína framtíð, ég skrifa eins mikið og ég get í mínum frítíma, harðákveðin að koma út næstu bók áður en langt um líður.“

Sú bók verður framhald á Skóladraugnum. „Ég hafði séð hana fyrir mér meðan ég vann handritið á sínum tíma. Þegar ég skrifaði Skóladrauginn hugsaði ég fyrst og fremst um að skrifa sögu sem skipti mig máli og ég vildi lesa. Þær bókmenntategundir sem ég mun spreyta mig á í framtíðinni geta orðið jafnfjölbreyttar og þær sem ég les sjálf, eða ég vona það að minnsta kosti. Ég hallast þó mikið að því furðulega þegar ég skrifa. Því hefur einnig verið stungið að mér að skrifa leikgerð að Skóladraugnum. Ég útiloka ekki þá hugmynd,“ segir Inga um framtíðaráformin.