Skip to main content

Malarvegirnir erfiðir

Sigríður Lilja Skúladóttir, MS frá Umhverfis- og byggingarverkfræðideild

„Undanfarin ár hefur ferðamönnum á Íslandi fjölgað gífurlega og umferðarslysum þar sem erlendir ferðamenn koma við sögu hefur einnig fjölgað. Erlendir ferðamenn eru oft óvanir íslenskum vegum og aðstæðum sem geta gert þeim erfitt fyrir að aka hér.“

Þetta segir Sigríður Lilja Skúladóttir sem unnið hefur rannsókn á samgöngum erlendra ferðamanna á Íslandi. Rannsóknin byggist á könnun sem lögð var fyrir erlenda ferðamenn sem komu hingað á árunum 2013 til 2016.

„Aðalmarkmiðið var að kanna við hvaða skilyrði erlendir ferðamenn ættu í erfiðleikum með að aka og hvaða þættir hefðu áhrif á upplifun þeirra. Einnig var notkun almenningssamgangna rannsökuð.“
 

Sigríður Lilja Skúladóttir

„Þeir sem fóru um Austurland bentu einnig á einbreiðar brýr sem hluta af erfiðri upplifun.“

Sigríður Lilja Skúladóttir

Sigríður Lilja segir að erlendum ferðamönnum hafi þótti erfiðast að aka malarvegi auk þess sem þeir hafi nefnt að veður væri óhagstætt akstri og sömuleiðis væri ástand vega ekki alltaf nægilega gott.

„Ef ferðamenn lentu í árekstri hér voru þeir líklegri til að gefa hærri erfiðleikaeinkunn en hinir. Þá hafði uppruni ferðamanna einnig áhrif á álit þeirra, árstíðirnar skiptu máli og einnig sá landshluti sem ferðast var um. Einnig bentu niðurstöður til þess að með meiri ökureynslu yrðu ferðamenn öruggari við akstur hér.“

Sigríður Lilja segir að Bandaríkjamönnum hafi þótt erfiðara að aka á Íslandi sökum framandi umferðarskilta hér, en Bandaríkin eru ekki aðili að Vínarsáttmálanum um umferðaröryggi. Umferðarskiltin þar eru því frábrugðin þeim sem hér eru. Þá voru ferðamenn frá Norðurlöndunum líklegri til að sætta sig við kröfur um aksturshraða hér, en reglur um hámarkshraða eru svipaðar annars staðar á Norðurlöndunum.

„Þegar kom að veðrinu reyndist ferðamönnum almennt erfiðara að aka á veturna sem kemur ekki á óvart þar sem veðrið á Íslandi getur verið óútreiknanlegt og ekki síst á veturna.“ Sigríður Lilja segir að ferðamönnum sem fóru um Vestfirði og Austfirði hafi almennt þótt aðstæður erfiðari en öðrum og vísuðu þá til ástands vega á þessum slóðum auk þess sem þeir bentu á sauðfé á þjóðvegunum. „Þeir sem fóru um Austurland bentu einnig á einbreiðar brýr sem hluta af erfiðri upplifun.“

Sigríður Lilja segir að ferðamönnum hafi fjölgað gífurlega undanfarin ár og spár segi að þeim muni fjölga áfram. „Því er mikilvægt að rannsaka samgöngur erlendra ferðamanna til að hægt sé að gera erlendum ferðamönnum auðveldara fyrir að ferðast um landið og koma í veg fyrir slys.“ Leiðbeinendur: Guðmundur Freyr Úlfarsson, prófessor við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild, og Þorsteinn Þorsteinsson, aðjunkt við Verkfræðistofnun.