Sunna Jóhannsdóttir, doktorsnemi við Lyfjafræðideild
„Rannsóknin mín snýst um að þróa svokallaðar sýklódextrín-lyfjaferjur fyrir peptíð og prótín sem nýta má gegn augnsjúkdómum. Sýklódextrín eru hjálparefni sem notuð eru við lyfjagerð til að auka leysanleika og stöðugleika lyfja í vatni. Ég nota þau til að auka leysni lyfja í vatni og mynda nanóagnir úr sýklódextrínlyfjafléttum sem gera það að verkum að lyfið helst lengur á yfirborði augans. Með þessu má stuðla að því að lyfið berist lengra inn í augað.“
Þetta segir Sunna Jóhannsdóttir, doktorsnemi í lyfjafræði, sem er í öflugum hópi doktorsnema Þorsteins Loftssonar prófessors sem einbeitir sér að sýklódextrínum og möguleikum þeirra.
Verkefnið er að sögn Sunnu framhald á meistaraverkefni hennar þar sem myndun sýklódextrín-lyfjaflétta var einnig í forgrunni. „Þorsteinn hafði áður rannsakað og hannað augnlyf með sýklódextrínlyfjaferjum fyrir litlar sameindir lyfja en ég hafði áhuga á að rannsaka stærri sameindir eins og prótín og peptíð. Í ljósi sameiginlegs áhuga okkar á viðfangsefninu ákvað ég í samstarfi við Þorstein að hefja rannsókn mína,“ segir Sunna sem m.a. hefur fengið styrk úr Verðlaunasjóði Bergþóru og Þorsteins Schevings Thorsteinssonar lyfsala til doktorsverkefnisins.
Sunna Jóhannsdóttir
"Ef okkur tekst að skipta út sprautumeðferð fyrir augndropa verður inngripið fyrir sjúklingana mun minna og það kann jafnframt að leiða til betri árangurs við meðferð sjúkdómanna.“

Rannsóknirnar hafa mikla þýðingu fyrir meðhöndlun sjúkdóma í bakhluta augans sem eru ein helsta orsök blindu. „Lyf við slíkum sjúkdómum eru iðulega prótein eða peptíð. Erfitt er að flytja þessi lyf frá yfirborði augans til bakhluta þess í nægilegu magni til að ná fram virkni. Því verður oftast að sprauta slíkum lyfjum beint inn í augað eða koma þeim inn í augað með skurðaðgerð. Ef okkur tekst að skipta út sprautumeðferð fyrir augndropa verður inngripið fyrir sjúklingana mun minna og það kann jafnframt að leiða til betri árangurs við meðferð sjúkdómanna,“ bendir hún á.
Sunnu hefur þegar orðið nokkuð ágengt í rannsóknum sínum. „Ég hef hannað svokallaða sýklósporin A augndropa með þessari tækni. Sýklósporin A er peptíð sem notað er við krónískum augnþurrki af völdum bólgna. Augndroparnir koma vel út og hafa verið prófaðir á kanínum sem þola þá vel og ekkert er því til fyrirstöðu að hægt verði að fara með þetta í rannsóknir á mönnum innan árs,“ segir Sunna.
Leiðbeinandi: Þorsteinn Loftsson, prófessor við Lyfjafræðideild