Skip to main content

Lög um fæðingarorlof feðra skila árangri

Guðný Björk Eydal, prófessor við Félags- og mannvísindadeild

„Árið 2000 voru sett hérlendis mjög framsækin lög um fæðingarorlof sem tryggðu báðum foreldrum rétt til þriggja mánaða fæðingarorlofs, auk þriggja mánaða sem þeir geta deilt sín á milli. Markmið laganna var að tryggja börnum umönnun beggja foreldra og gera báðum foreldrum kleift að sinna vinnu og fjölskyldu.“ Þetta segir Guðný Björk Eydal, prófessor við Félagsráðgjafardeild, sem hefur unnið að rannsókn til að meta raunveruleg áhrif þessara laga.

Guðný Björk Eydal

Að sögn Guðnýjar liggja fyrstu niðurstöður fyrir og þær sýna að enn dregur saman með foreldrum og að æ fleiri börn njóta umönnunar beggja foreldra fyrstu þrjú æviárin. „Þær mælingar sýna, svo að ekki verður um villst, að löggjöfin hefur haft tilætluð áhrif“

Guðný Björk Eydal

„Ég hef gert þrjár kannanir meðal foreldra til að meta áhrifin,“ segir Guðný. „Fyrsta könnunin var gerð áður en lögin tóku gildi, síðan 2007 og sú síðasta var framkvæmd síðastliðið sumar í samstarfi við Ingólf V. Gíslason, dósent við Félags- og mannvísindadeild, og Ásdísi A. Arnalds doktorsnema.“ Rannsóknin hefur fjölþætt gildi að mati Guðnýjar. „Hún hefur gífurlegt alþjóðlegt gildi þar sem litið er til Íslands sem fyrirmyndar í þessu tilliti og hún sýnir að með markvissum stuðningi er hægt að skapa báðum foreldrum tækifæri til að annast börn sín og sinna störfum á vinnumarkaði.

Rannsóknin veitir líka stjórnvöldum upplýsingar um þann hóp sem ekki nær að nýta sér réttinn til fæðingarorlofs og gefur þeim kost á að greina þær hindranir sem hann mætir.“ Að sögn Guðnýjar var kveikjan að fyrstu rannsókninni sú að mikilvægt þótti að þekkja stöðuna áður en jafn róttækar breytingar og hér um ræðir yrðu gerðar. „Það er gífurlegur alþjóðlegur áhugi á árangri okkar Íslendinga og mikil eftirspurn er eftir þekkingu á áhrifum þessara laga á alþjóðavettvangi þar sem Ísland er fremst meðal jafningja á þessu sviði og íslenskir feður eru fyrirmynd í þessum efnum.“

Að sögn Guðnýjar liggja fyrstu niðurstöður fyrir og þær sýna að enn dregur saman með foreldrum og að æ fleiri börn njóta umönnunar beggja foreldra fyrstu þrjú æviárin. „Þær mælingar sýna, svo að ekki verður um villst, að löggjöfin hefur haft tilætluð áhrif,“ segir Guðný.

Guðný segir að félagsráðgjafar vinni mjög víða að fjölskylduvernd. „Mikilvægi þess að tryggja foreldrum aðstæður til að búa vel að börnum sínum frá fæðingu er óumdeilt.“