Agnes Gísladóttir, doktorsnemi við Læknadeild
Tilkynningum um kynferðisofbeldi hefur fjölgað hérlendis samkvæmt skýrslu ríkislögreglustjóra um tölfræði afbrota. Á árinu 2015 voru tilkynnt kynferðisbrot 442 samanborið við 419 árið á undan. Þar af voru nauðganir 178 árið 2015 en 129 árið 2014. Ljóst er að kynferðisbrot eru algeng og því er afar áríðandi að rannsaka þau áhrif sem ofbeldi af þessu tagi getur haft á brotaþola.
Við Miðstöð í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands hefur verið unnið að rannsókn um nokkurt skeið sem hefur það að markmiði að sjá hvort konur, sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi, séu í aukinni hættu á erfiðleikum tengdum meðgöngu og fæðingu seinna á lífsleiðinni.
Agnes Gísladóttir, doktorsnemi við Læknadeild, stýrir rannsókninni en hún segir að rannsóknir hafi sýnt betur og betur að áföll geti haft neikvæðar heilsufarslegar afleiðingar fyrir einstaklinga og kynferðisofbeldi sé eitt algengasta áfallið sem konur verði fyrir.
Agnes Gísladóttir
Konur sem höfðu orðið fyrir kynferðisofbeldi eru líklegri en hinar, sem ekki þoldu slíkt ofbeldi, til að reykja á meðgöngu „en reykingar eru meðal þeirra áhættuþátta á meðgöngu sem helst er hægt að hafa áhrif á.“

„Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin lítur á ofbeldi sem ógn við mannréttindi og lýðheilsu á heimsvísu og hefur jafnframt kallað eftir frekari rannsóknum á hugsanlegum afleiðingum fyrir brotaþola. Möguleg áhrif á meðgöngu og fæðingu hafa ekki verið rannsökuð til hlítar en á Íslandi eru kjöraðstæður til að gera slíkar rannsóknir með því að notast við gagnagrunna. Grunnurinn að rannsókninni okkar er fæðingaskrá sem hefur að geyma upplýsingar um allar fæðingar á Íslandi frá 1981.“
Agnes segir að niðurstöður liggi fyrir sem sýni að konur sem höfðu orðið fyrir kynferðisofbeldi séu líklegri en hinar, sem ekki þoldu slíkt ofbeldi, til að reykja á meðgöngu „en reykingar eru meðal þeirra áhættuþátta á meðgöngu sem helst er hægt að hafa áhrif á,“ segir Agnes. „Þá var aukin hætta á að fæðingar væru langdregnar og að beita þyrfti inngripum í fæðingu. Frumniðurstöður um nýbura benda til aukinnar hættu á fæðingum fyrir tímann. Á heildina litið gengur þó vel hjá langflestum þeirra kvenna sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi.“
Agnes segir að niðurstöðurnar úr rannsókninni geti orðið ráðgefandi og grundvöllur frekari rannsókna á því hvernig bæta megi þjónustu við brotaþola, bæði á meðgöngu og í fæðingu en eins á öðrum lífsskeiðum.
Leiðbeinandi: Unnur A. Valdimarsdóttir, prófessor við Læknadeild

