Arna Hólmfríður Jónsdóttir, lektor við Kennaradeild
Háskóli Íslands tekur þátt í ýmsum mikilvægum átaksverkefnum í samfélaginu. Eitt þeirra sem nú stendur yfir nefnist „Karlar í yngri barna kennslu“. Að því koma einnig fulltrúar Kennaradeildar Háskólans á Akureyri, Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Mennta-og menningarmálaráðuneytið skipaði starfshóp í byrjun árs 2012 sem bregðast átti við ískyggilegum horfum á skorti á leikskólakennurum. Aðgerðir þá sneru að því að fjölga þeim sem sækja um leikskólakennaranámið en nú beinir hópurinn sjónum sínum að körlunum. Verkefnið hlaut styrk úr Jafnréttissjóði Íslands í sumar. Bent hefur verið á að á Íslandi séu aðeins 1,7% leikskólakennara karlkyns og enn fremur að um 60% af launamun kynjanna megi rekja til starfstengds vals þeirra.
Arna H. Jónsdótti lektor segir leikskóla ekki vera framlengingu á heimilinu heldur sé um að ræða menntastofnun fyrir börn. Hún segir markmið verkefnisins vera tvíþætt; annars vegar að kveikja áhuga karla á leikskólakennarastarfinu og hins vegar að fjölga þeim innan stéttarinnar. „Við viljum reyna að brjóta upp þessa sýn í samfélaginu að þetta sé láglaunakvennastétt,“ segir Arna og áréttar að þetta sé starf fyrir karla jafnt sem konur.
Arna Hólmfríður Jónsdóttir
„Það þarf að tala þetta starf upp, það á ekki bara að horfa á kennara sem stétt sem er alltaf í kjarabaráttu heldur stétt sem er faglega sterk, hefur áhuga á að mennta sig og börnin allt lífið.“

„Við komum mörg að þessu verkefni og við erum áhugasöm. Það er liður í því að byggja upp breiða samstöðu í kringum það,“ bætir hún við.
Nú þegar hefur hópurinn staðið að morgunverðarfundi og málþingi um karla í yngri barna kennslu og þá hyggst hann efla enn frekar umræðuna um karla í leikskólum, m.a. á samfélagsmiðlum. Einnig verður útbúið fræðsluefni um karla og leikskólakennarastarfið fyrir alla framhaldsskóla landsins.
„Það þarf að tala þetta starf upp, það á ekki bara að horfa á kennara sem stétt sem er alltaf í kjarabaráttu heldur stétt sem er faglega sterk, hefur áhuga á að mennta sig og börnin allt lífið,“ segir Arna sem er mikið í mun að leikskólarnir hafi jákvæða ímynd. „Við viljum vera í sókn og við segjum: Þetta er merkilegt starf, það er atvinnuöryggi, þetta er skemmtilegt, þú getur menntað þig til þess að takast á við fleiri stöður og tekið þátt í alþjóðlegum samstarfsverkefnum.“
Hópurinn hefur jafnframt sótt um styrk í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og hyggst sækja um í Jafnréttissjóð aftur að ári með það fyrir augum að vinna rannsókn í tengslum við verkefnið.