Valgerður Lísa Sigurðardóttir, doktorsnemi við Hjúkrunarfræðideild
„Ég hef haft mikinn áhuga á reynslu kvenna og upplifun frá því að ég byrjaði að vinna sem ljósmóðir. Eftir að ég fór að vinna með Ljáðu mér eyra jókst áhugi minn á að gera enn þá betur,“ segir Valgerður Lísa Sigurðardóttir, doktorsnemi í ljósmóðurfræðum, sem rannsakar hvernig konur upplifa fæðingu barna sinna. Valgerður hefur undanfarin ár einnig unnið með Ljáðu mér eyra, teymi ljósmæðra á Landspítalanum sem veitir viðtalsþjónustu fyrir konur sem vilja ræða um fæðingarreynslu sína.
Valgerður Lísa Sigurðardóttir
„Við vitum það frá erlendum rannsóknum að tíðni þess að upplifa fæðingu neikvæða er frá sjö prósentum upp í rúmlega 40 prósent."

Valgerður segir að aðalmarkmið rannsóknarinnar sé að þróa meðferð fyrir konur sem upplifa fæðingu barna sinna erfiða eða neikvæða. Rannsóknin er í nokkrum hlutum. „Fyrsti hlutinn er að skoða hversu algengt það er að konur upplifi fæðinguna neikvætt og helstu áhrifaþætti þess. Næsta skref væri svo að skoða hvað er í boði fyrir þær.“ Annar liðurinn er að skoða hvort aðstoðin, sem Ljáðu mér eyra býður upp á, hjálpar þessum hópi en ætlunin er að nýta niðurstöður úr rannsókninni til að þróa meðferð.
„Við vitum það frá erlendum rannsóknum að tíðni þess að upplifa fæðingu neikvæða er frá sjö prósentum upp í rúmlega 40 prósent. Ljósmóðir sem vinnur á heilsugæslustöð hittir á hverjum degi eina til fjórar konur sem hafa upplifað fæðinguna á þennan hátt,“ segir Valgerður. Valgerður telur að rannsókn sín geti nýst á tvennan hátt. Annars vegar geti hún orðið til þess að bæta þjónustuna við fæðandi konur og umhverfið í kringum meðgöngu og fæðingu. „Hins vegar að auka meðvitund allra um að það skiptir máli að geta rætt um fæðingarreynslu sína.“
Leiðbeinandi: Helga Gottfreðsdóttir, prófessor við Hjúkrunarfræðideild.