Sólveig Ása Árnadóttir, dósent við Læknadeild
Hreyfing er lykilþáttur í þeirri þjónustu sem sjúkraþjálfarar veita. Dæmi um slíkt er að margir leita til sjúkraþjálfara í því skyni að ná nægilegri færni til að geta hreyft sig eðlilega í daglegu lífi. Sjúkraþjálfarar nota einnig hreyfingu sem meðferðarform við ákveðinni færniskerðingu og sjúkdómum,“ segir Sólveig Ása Árnadóttir, sjúkraþjálfari og dósent við námsbraut í sjúkraþjálfun. Hún vinnur nú að rannsókn á notagildi hreyfimæla til að meta daglega hreyfingu eldri borgara með greiningu, hvatningu og árangursmælingar í huga.
Sólveig segir að hingað til hafi mælar sem þessir fyrst og fremst verið notaðir í rannsóknaskyni. Þar hefur komið í ljós að þeir geta gefið mikilvægar upplýsingar um athafnir og lífsstíl þess sem gengur með mælinn. Hún segir tímabært að sjúkraþjálfarar tengi þessa áhugaverðu tækni beint við forvarnar- og meðferðarstarf og byggi jafnframt upp gagnasafn með viðmiðunargildum fyrir daglega hreyfingu.
Sólveig Ása Árnadóttir
Sólveig vinnur nú að rannsókn á notagildi hreyfimæla til að meta daglega hreyfingu eldri borgara með greiningu, hvatningu og árangursmælingar í huga.

Í rannsókn Sólveigar eru notaðir hreyfimælar af gerðinni ActivPAL, sem eru festir á læri þátttakenda og safna gögnum um hröðun og breytingar á líkamsstöðu í allt að sjö sólarhringa samfleytt. Hún segir reynsluna af þeim góða, þeir séu litlir og léttir en nákvæmir.
Nú þegar liggja fyrir gögn úr forrannsókn á 70 manns á aldrinum 65 til 89 ára. Þátttakendurnir áttu það sameiginlegt að vera búsettir í heima- húsum en heilsa og færni þeirra var afar misjöfn. „Niðurstöðurnar sýndu til dæmis að meðalsólarhringur í lífi þátttakenda skiptist upp í 17,7 klst. í sitjandi eða liggjandi stöðu, 4,6 klst. í uppréttri stöðu og 1,7 klst. á göngu. Þá stóðu þátttakendur að jafnaði 58 sinnum upp úr stól á degi hverjum,“ segir Sólveig og bendir á að gífurlegur munur hafi verið á meðalskrefafjölda eftir þátttakendum, frá tæplega 300 skrefum á dag upp í hátt í 15.000 skref.
„Óhófleg kyrrseta ógnar heilsu og lífsgæðum fólks. Afar mikilvægt er að sjúkraþjálfarar sinni hlutverki sínu sem vísinda- og heilbrigðis- starfsmenn og leggi sitt af mörkum til að vinna gegn þessari þróun með heilsueflandi hreyfingu að leiðarljósi,“ segir Sólveig að lokum.