Skip to main content

Hindranir á vegi kvenna í stjórnun

Unnur Dóra Einarsdóttur, MS frá Viðskiptafræðideild

Kveikjan að meistararannsókn Unnar Dóru Einarsdóttur í viðskiptafræði var brennandi áhugi hennar á jafnrétti. Hún hefur lengi velt vöngum yfir hversu hægt gangi að jafna kynjahlutföll í efstu lögum íslenskra fyrirtækja. Unnur Dóra bendir á að jafnrétti kynjanna sé ekki bara réttlætismál, það sé ekki síður efnahagsmál. Rannsóknir sýni að með því að auka jafnrétti og bæta stöðu kvenna á vinnumarkaði sé unnt að auka hagvöxt og efnahagsstöðugleika.

„Efni rannsóknarinnar á því vel við,“ segir Unnur Dóra, „þar sem umræða í samfélaginu hefur mjög snúið að því að greina og hrinda úr vegi hlutum sem viðhalda ójafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.“

Unnur Dóra bætir því við að markmið rannsóknarinnar hafi verið að varpa ljósi á upplifun kvenmillistjórnenda í stórum og meðalstórum fyrirtækjum jafnframt því að skoða stöðu kvennanna og mat þeirra á nánustu framtíð.

Unnur Dóra Einarsdóttur

„Öllum sýnilegum hindrunum hefur reyndar verið ýtt úr vegi. Samkvæmt lögum er réttur kynjanna enda jafn. Flókinn vefur óáþreifanlegra og ómeðvitaðra hindrana er þó enn til staðar í formi karllægrar menningar, viðhorfa, formgerða fyrirtækja og langlífra staðalímynda.“

Unnur Dóra Einarsdóttur

„Nokkuð er til af niðurstöðum úr rannsóknum á upplifun þeirra kvenna sem komist hafa alla leið upp metorðastigann og þá þætti sem einkenna þær en minna hefur verið gert af því að rannsaka hag kvenna sem eru komnar inn í mitt völundarhúsið og eru að varða leiðina á toppinn.“
 

Unnur Dóra segir að helstu niðurstöður úr rannsókninni bendi til þess að ýmsar flóknar hindranir blasi við konum sem eru á leið upp metorðastigann og að konur sitji ekki við sama borð og karlar þegar litið er til tækifæra og hindrana til æðstu metorða.

„Öllum sýnilegum hindrunum hefur reyndar verið ýtt úr vegi. Samkvæmt lögum er réttur kynjanna enda jafn. Flókinn vefur óáþreifanlegra og ómeðvitaðra hindrana er þó enn til staðar í formi karllægrar menningar, viðhorfa, formgerða fyrirtækja og langlífra staðalímynda. Þessir þættir í sameiningu draga úr sjálfstrausti og þrótti kvenna til að sækjast eftir æðstu störfum ásamt því að valda þeim álagi og um leið viðhalda raunverulegum vanda ójafnréttis kynjanna í æðstu stjórnendastöðum fyrirtækjanna.“

Að Unnar Dóru sögn er rannsóknin mikilvægt innlegg í jafnréttisumræðuna sem áríðandi er að halda gangandi. „Einnig söfnuðust í rannsókninni mikilvæg gögn sem nýst geta sem innlegg til frekari rannsókna á stöðu kvenna á vinnumarkaði.“

Leiðbeinendur: Erla Sólveig Kristjánsdóttir, lektor við Viðskiptafræðideild, og Þóra Hansdóttir Christiansen, aðjunkt við Viðskiptafræðideild.