Tryggvi Þorgeirsson, aðjunkt og doktorsnemi í lýðheilsuvísindum við Læknadeild
„Algengasta orsök ótímabærra dauðsfalla í heiminum eru langvinnir sjúkdómar en þeir eiga gjarnan rót í óheppilegum lifnaðarháttum, svo sem óhollu mataræði og hreyfingarleysi. Þrátt fyrir að þessir lífsstílstengdu sjúkdómar valdi um 86% dauðsfalla í Evrópu er eingöngu um 1,6% af heilbrigðisútgjöldum varið í forvarnir gegn þeim,“ segir Tryggvi Þorgeirsson, læknir og doktorsnemi. Hann vinnur ásamt stórum hópi fólks að því að þróa snjallsímaforrit sem nýtt verður til heilsueflingar og forvarna gegn lífsstílstengdum sjúkdómum. „Við veltum fyrir okkur hvers vegna heilsuefling ætti endilega að vera leiðinleg og við viljum þvert á móti hafa skemmtun og leikgleði í fyrirrúmi. Að þessu verkefni vinn ég bæði í gegnum sprotafyrirtækið GoodLifeMe og doktorsverkefni mitt við Miðstöð í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands,“ segir Tryggvi enn fremur.
Verkefnið er unnið í samstarfi við sérfræðinga við nokkra af virtustu háskólum í heimi, Harvardháskóla og MIT í Bandaríkjunum og Karolinskaháskólann í Svíþjóð, en auk þess eiga Embætti landlæknis og háskólasjúkrahús á Íslandi, í Noregi og Svíþjóð aðild að því. „Einnig vinnum við með stórum hópi skapandi fólks á hönnunarstofum í Kaaber-húsinu. Við erum fullviss um að snjallsímar séu vænlegur miðill fyrir heilsueflingu en erlendar rannsóknir hafa sýnt að það skorti vísindalega þróuð og prófuð öpp til heildrænnar heilsueflingar,“ segir Tryggvi.
Tryggvi Þorgeirsson
Tryggvi vinnur ásamt stórum hópi fólks að því að þróa snjallsímaforrit sem nýtt verður til heilsueflingar og forvarna gegn lífsstílstengdum sjúkdómum.

Kveikjuna að verkefninu má rekja til starfa Tryggva sem læknis. „Eftir að hafa skrifað ófáa lyfseðla við lífsstílstengdum kvillum langaði mig að leggja mitt lóð á vogarskálarnar á þessum vettvangi. Ég fór í meistaranám í lýðheilsuvísindum við Harvard og kenni nú námskeið um heilsueflingu og forvarnir við Háskóla Íslands. Undanfarið ár hef ég stýrt þróun á appinu sem forstjóri GoodLifeMe og er nú að ýta úr vör doktorsrannsókn á því hvernig appið nýtist við heilsueflingu í framhaldsskólum og við spítalatengda meðferð fyrir unglinga í yfirvigt,“ segir Tryggvi enn fremur og bætir við að fleiri rannsóknarverkefni tengd appinu séu í burðarliðnum.
Verkefnið hefur vakið mikla athygli og hlotið styrki frá Tækniþróunarsjóði, Lýðheilsusjóði, rannsóknasjóðum Háskóla Íslands og Karolinska-háskólans og Barnauppeldissjóði Thorvaldsensfélagsins. „Við höfum lokið við frumgerð forritsins og gerum ráð fyrir að þróunarútgáfa komi út í byrjun árs 2014. Hún verður notuð í forrannsóknir meðal nokkurra hundraða ungmenna til að undirbúa endanlega útgáfu sem kemur út undir lok árs 2014. Sú útgáfa verður síðan prófuð með samanburðarrannsóknum, bæði á meðal almennra framhaldsskólanema og við sjúkrahústengda meðferð fyrir unglinga í yfirvigt,“ útskýrir Tryggvi.
Um samfélagslegan og vísindalegan ávinning verkefnisins þarf ekki að deila. „Við ætlum okkur að bjóða með appinu skemmtilega, skapandi og þjóðhagslega hagkvæma leið til að efla heilsu almennings hér á landi og erlendis og draga úr sjúkdómsbyrði. Með vönduðum rannsóknum vonumst við einnig til að bæta í mikilvægan þekkingargrunn varðandi þessa nýju nálgun við lýðheilsuinngrip og opna þannig dyrnar fyrir frekari notkun snjallsíma við heildræna heilsueflingu,“ segir Tryggvi að lokum.
Leiðbeinandi: Ragnar Bjarnason, prófessor við Læknadeild.