Lilja Rögnvaldsdóttir, MS-nemi við Líf- og umhverfisvísindadeild
Rannsóknir í ferðaþjónustu eru nauðsynlegar fyrir framþróun þessarar mikilvægu grunnatvinnugreinar okkar Íslendinga,“ segir Lilja Rögnvaldsdóttir, MS-nemi í ferðamálafræði og verkefnisstjóri hjá Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Húsavík, sem rannsakar hagræn áhrif ferðaþjónustu í Þingeyjarsýslu.
„Meginmarkmið rannsóknarinnar er tvíþætt: annars vegar að meta bein efnahagsleg áhrif ferðaþjónustu í Þingeyjarsýslu með hliðsjón af alþjóðlegri forskrift ferðaþjónustureikninga og hins vegar að meta óbein og afleidd efnahagsleg áhrif með aðferðum aðfanga- og afurðagreiningar. Rannsóknin er unnin samhliða sambærilegri rannsókn Rannsóknamiðstöðvar ferðamála á þjóðhagslegum áhrifum ferðaþjónustu og verða niðurstöður þessa verkefnis notaðar til samanburðar og staðfestingar á því hvað mögulegt er að heimfæra af þjóðhagslegum stærðum upp á einstök svæði,“ segir Lilja.
Lilja Rögnvaldsdóttir
„Meginmarkmið rannsóknarinnar er tvíþætt: annars vegar að meta bein efnahagsleg áhrif ferðaþjónustu í Þingeyjarsýslu með hliðsjón af alþjóðlegri forskrift ferðaþjónustureikninga og hins vegar að meta óbein og afleidd efnahagsleg áhrif með aðferðum aðfanga- og afurðagreiningar.“

Lilja hefur, eins og aðrir, fylgst með umræðunni um skort á rannsóknum í ferðaþjónustu sem nauðsynlegar eru fyrir frekari þróun og uppbyggingu atvinnugreinarinnar. „Ferðaþjónusta er orðin einn af grunnatvinnuvegum þjóðarinnar og stendur frammi fyrir miklum áskorunum næstu ár. Mér fannst því mjög spennandi að vinna þetta rannsóknarverkefni á landsbyggðinni í samvinnu við heimamenn þar sem uppgangur í ferðaþjónustu hefur verið mikill,“ útskýrir Lilja.
Rannsókn Lilju er skammt á veg komin en vinnan hingað til hefur aðallega snúist um að laga aðferðafræði að aðstæðum og greiningu fyrirliggjandi gagna. Árið 2014 hyggst hún nýta til að afla frumgagna með viðtölum við rekstraraðila og vinna úr þeim. „Nýnæmið í þessari rannsókn liggur í aðferðafræðinni, sem gerir það að verkum að niðurstöðurnar verða samanburðarhæfar við þjóðhagsstærðir á landsvísu og vonandi við önnur svæði í heiminum. Fyrir samfélagið er mjög mikilvægt að þekkja umfang og áhrif ferðaþjónustunnar áður en kemur að ákvarðanatöku um ýmis málefni, s.s. frekari uppbyggingu atvinnugreinarinnar, almenn skipulagsmál og auðlindastjórnun,“ segir Lilja.
Leiðbeinandi: Anna Dóra Sæþórsdóttir, dósent við Líf- og umhverfisvísindadeild. Meðleiðbeinandi: Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor við Viðskipta- og raunvísindadeild Háskólans á Akureyri.