Skip to main content

Gervifætur með fullu viti

Fjóla Jónsdóttir, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild

Það er vel þekkt vandamál með hefðbundna gervifætur að þeir hafa fasta stífni. Mismunandi aðstæður krefja þannig notandann til að skipta um gervifót til að þjóna ólíkum þörfum. Það þarf þannig stífari fót fyrir hlaup og stökk heldur en fyrir göngu og hvíld. Fjóla Jónsdóttir, prófessor í vélaverkfræði, leiðir nýja rannsókn þar sem notuð verða svokölluð snjallefni til að þróa gervifót sem hefur breytilega eða stýranlega stífni eftir aðstæðum. Þannig má segja að verið sé að þróa fót með fullu viti. Verkefnið er unnið í samstarfi við hátæknifyrirtækið Össur sem er leiðandi í stoðtækjaframleiðslu á heimsvísu. Verkefnið er þannig eitt af mörgum þar sem samvinna Háskóla Íslands og aðila úr atvinnulífinu leiðir til framfara og nýrrar þekkingar.

„Það er auðvitað gríðarlegur kostur fyrir notanda gervifótar að geta stýrt stífni hans í rauntíma eftir aðstæðum,“ segir Fjóla og bætir því við að snjallefni, eins og þau sem notuð verða við þróun nýja fótarins, séu efni sem hægt sé að breyta eða stýra með ytra áreiti, s.s. spennu, hita, raka, rafmagns- eða segulsviði.

Að Fjólu sögn eru rafsegulvökvar, rafsegulfastefni, þrýstirafefni og torleiðifjölliður ágæt dæmi um slík snjallefni.

Fjóla segir afar hagkvæmt fyrir samfélagið að rannsókn skapi nýja grunnþekkingu, sem nýtist við frekari rannsóknir, um leið og hún byggi upp verðmæti hjá öflugu fyrirtæki. „Slíkt samstarf milli háskóla og atvinnulífs kemur öllum til góða, fyrirtækjunum sjálfum, vísindamönnum og nemendum sem fá tækifæri til að vinna að krefjandi verkefnum í atvinnulífinu samhliða náminu.“

„Slíkt samstarf milli háskóla og atvinnulífs kemur öllum til góða, fyrirtækjunum sjálfum, vísindamönnum og nemendum sem fá tækifæri til að vinna að krefjandi verkefnum í atvinnulífinu samhliða náminu.“

Fjóla Jónsdóttir og samstarfsmenn

Fjóla segir að verkefnið sé til þriggja ára og doktorsneminn Heimir Tryggvason hafi nýlega bæst í hópinn en verkefnið er skýrt dæmi um hvernig vinna doktorsnema skapar nýja þekkingu við háskólann.

„Við höfum miklar væntingar til þess að þetta verkefni leiði til nýrrar frumgerðar af gervifæti,“ segir Fjóla sem hefur alltaf heillast af verkefnum þar sem verkfræðilegar lausnir nýtast út fyrir hina hefðbundnu vélaverkfræði.

„Það er mjög gefandi að vinna að verkefni eins og þessu sem nýtist beint til að auka lífsgæði fólks.“

Tilkoma nýrra tegunda styrkja hjá Tækniþróunarsjóði, sem styðja hagnýt rannsóknarverkefni, gerir teyminu kleift að vinna saman að þessu mikilvæga verkefni.